Vinnuskólinn sumarið 2022

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Akraness.

Unglingar fæddir 2006, 2007 og 2008 geta sótt um starf í Vinnuskólanum, lengd vinnutíma og tímabil er mismunandi eftir árgöngum.

Einnig geta unglingar fæddir 2005 sótt um starf í Vinnuskólanum og ræðst lengd vinnutíma eftir fjölda umsækjenda.

Sótt er um í gegnum umsóknarvefinn Völu Vinnuskóla.

Vala vinnuskóli er nýtt rafrænt kerfi sem heldur utan um umsóknir og vinnu unglingana.

Umsóknarfrestur er til 20. maí og verður vinnuskólinn settur 7. júní.

Nánari upplýsingar eru inn á heimssíðu Akraneskaupstaðar

Einnig er hægt að senda póst á Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóra og umsjónarmann Vinnuskólans á netfangið jonsverris@akranes.is