Nemendur

Í upphafi skólaárs Grundaskóla, í ágúst 2022, eru 678 nemendur í 30 bekkjardeildum. Í öllum árgöngum eru þrjár bekkjardeildir. Skólinn skiptist í þrjú stig, yngstastig, miðstig og unglingastig. Þrátt fyrir að þröngt sé stundum á þingi, er skólastarfið blómlegt og skapandi.  Starfsfólk skólans er 119 talsins og þar af eru 30 umsjónarkennarar.