Kæru foreldrar/forráðamenn

Næstkomandi mánudag 18. og þriðjudag 19. október er vetrarleyfi í Grundaskóla og fellur kennsla niður þessa tvo daga. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 20. október.

Samvera foreldra og barna er frábær forvörn og nú er einstakt tækifæri til að efla tengslin enn frekar. Það er alltaf hægt að njóta samverustunda með fjölskyldunni og hér má finna hugmyndir af margvíslegri afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra.

Við óskum fjölskyldum alls hins besta í vetrarleyfinu.

Kær kveðja, starfsfólk Grundaskóla