Haustið er komið og breytingar verða á útivistartíma þann 1. sept.

Samkvæmt 92. grein barnaverndarlaga (nr. 80/2002) eru útivistartímar barna og unglinga sem hér segir:

Útivistartími yfir vetrartímann (1. september til 1. maí) 

  • Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20:00.
  • Börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22:00.

Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.