Foreldrar/forráðamenn verðandi nemenda í 1. bekk.

Haldinn verður fundur með foreldrum/forráðamönnum í sal Grundaskóla fimmtudaginn 18. ágúst kl. 17:30. Þar verður farið yfir skipulagið í 1.bekk, þjónustu frístundar Grundasels og annað.

Kennarar í 1. bekk eru Hafrún Jóhannesdóttir, Ólöf Inga Guðbrandsdóttir, Svava Mjöll Viðarsdóttir og Guðlaug Margrét Sverrisdóttir.

Sótt er um í frístundina Grundasel rafrænt inn á vef Akraneskaupstaðar. Umsóknareyðublað er undir þjónusta>frístundaheimili.

Við vekjum athygli á því að skólinn útvegar öllum nemendum ritföng og námsgögn sem eru geymd í skólanum. Margir nemendur hafa samt valið að vera með eigið pennaveski.

 

Við hlökkum til samstarfsins og gleðilegt sumar.

Kær kveðja frá okkur í Grundaskóla