Upplestrarkeppnin í 7. bekk.
Heiða Viðarsdóttir • 18. nóvember 2025
Í tilefni af degi íslenskrar tungu hófum við formlega upplestrarkeppnina
Dagur íslenskrar tungu var sunnudaginn 16. nóvember og í tilefni dagsins hófum við formlega upplestrarkeppnina.
Nemendur í 7. bekk komu saman á sal þar sem þeir fengu tækifæri til að spyrja Daða Rafn Reynisson, sigurvegara keppninnar í vor, nokkurra spurninga.
Að lokum las Daði ljóð fyrir nemendur. Nemendur voru staðráðnir í því að hefja æfingar sem fyrst og gera sitt besta fyrir komandi keppni.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk






