4. bekkur las mest í lestrarkeppninni

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 19. nóvember 2026

Nú er lestrarkeppninni lokið og er óhætt að segja að nemendur hafi staðið sig með mikilli prýði. Að keppni lokinni fékk sá árgangur sem las mest og þeir nemendur sem lásu mest í sínum árgangi viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Nemendur fengu verðlaunaskjal og gjafabréf.


Það var 4. bekkur sem bar sigur úr býtum í keppni árganganna en nemendur þar lásu samtals 102.580 orð. Glæsilegur árangur.


Eftirtaldir nemendur lásu mest í sínum árgangi:


  • 1. bekkur: Aðalheiður Björk
  • 2. bekkur: Salvör Tinna
  • 3. bekkur: Emilía Rós
  • 4. bekkur: Sylva Sól og Móey
  • 5. bekkur: Rúrik Logi
  • 6. bekkur: Sara Dís
  • 7. bekkur: Þorri Kristján

Við óskum öllum nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim fyrir góða þátttöku. Þótt nemendur hafi almennt staðið sig mjög vel er alltaf hægt að gera enn betur og því stefnum við á að hefja nýja lestrarkeppni í febrúar. Við hlökkum til að sjá hversu mörg orð verða lesin þá.



Verðlaunaafhendingin fór fram á degi íslenskrar tungu. Af því tilefni komu nemendur úr 10. bekk og sungu með nemendum í 1. - 7. bekk vináttusönginn okkar. 

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 20. nóvember 2026
Á miðvikudaginn 18. nóvember fékk 8. bekkur heimsókn frá systrunum og fyrrverandi nemendum Grundaskóla, þeim Hörpu og Berglindi Þráinsdætrum. Þær sögðu nemendum frá fæðingargalla Hörpu, hvaða áhrif það hafði á líf þeirra í Grundaskóla á sínum tíma að vera öðruvísi og hvaða lærdóma mætti draga af þeirra reynslu. Heimsóknin var í tengslum við verkefnið Undur og stórmerki sem nú er unnið í 8. bekk, þar sem lesin er bókin Undur. Bókin fjallar um drenginn Ágúst sem fæddist með galla í andliti og er að byrja í nýjum skóla með tilheyrandi áskorunum. Nemendur okkar voru mjög forvitnir og voru einstaklega duglegir að spyrja þær systur, enda þeirra saga um margt svipuð þeirri sem við erum að lesa um í bókinni.  Óhætt er að segja að nemendur hafi lært mikið af þessari heimsókn og þökkum við Hörpu og Berglindi kærlega fyrir að gefa sér tíma og ræða við nemendur.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 20. nóvember 2026
Verðlaunaafhending í keppninni Göngum í skólann fór fram í sal skólans í síðustu viku. Nemendur eru alltaf spenntir og auðvitað er gaman að sigra og fá afhentan Gullskóinn glæsilega fyrir góðan árangur. Það voru allir árgangar að sjálfsögðu með og kennari hvers bekks skráði niður ferðir nemenda sinna einn dag í hverri viku í 5 skipti. Niðurstöður keppninar voru á þá leið að 10. bekkurinn okkar var sigurvegarinn þetta árið. Það er gaman þegar elstu nemendur skólans eru góðar fyrirmyndir og eru þau vel að sigrinum kominn. Til hamingju 10.bekkur.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 19. nóvember 2026
Í tilefni af degi íslenskrar tungu unnu nemendur í 7. bekk skemmtilegt verkefni sem bar heitið Íslenskur blómagarður . Nemendur bjuggu hver til sitt eigið blóm með fimm blöðum og fylltu þau af íslenskum orðum sem höfðu sérstaka merkingu fyrir þau. Þau völdu meðal annars orð sem minntu þau á eitthvað fallegt, orð sem hljómuðu skemmtilega eða skringilega, gömul íslensk orð, uppáhaldsorðin þeirra og orð sem tengdust fjölskyldu, vináttu og náttúrunni á Íslandi. Einnig fengu nemendur tækifæri til að velta fyrir sér orðum sem þau höfðu nýlega lært, orðum sem lýstu líðan þeirra og orðum sem þau vildu gjarnan að fleiri þekktu. Úr varð fjölbreyttur og litríkur íslenskur blómagarður þar sem hvert blóm er einstakt og endurspeglar hugmyndir, upplifanir og orðaval hvers nemanda.  Verkefnið var skemmtileg leið til að vekja athygli á fjölbreytileika íslenskunnar, velta fyrir sér töfrum tungumálsins og minna okkur á hversu dýrmætt það er að eiga fallegt og fjölbreytt móðurmál.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 18. nóvember 2026
Á degi íslenskrar tungu hófst formlega undirbúningur fyrir upplestrarkeppni 7. bekkjar. Nemendur komu saman á sal skólans þar sem farið var yfir fyrirkomulag keppninnar og næstu skref í undirbúningnum, en lokakeppnin fer fram í mars. Sérstakur gestur var Laufey Svanbergsdóttir, sigurvegari upplestrarkeppninnar frá því í fyrra. Laufey las ljóð fyrir nemendur og svaraði síðan spurningum þeirra um þátttöku í keppninni og reynslu sína af verkefninu. Það var bæði fróðlegt og hvetjandi fyrir nemendur að fá að heyra af reynslu hennar.  Nú tekur við spennandi undirbúningstími þar sem nemendur fá tækifæri til að æfa sig, efla færni sína í upplestri og kynnast íslenskum bókmenntum og ljóðum enn betur.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 18. nóvember 2026
Nemendur í 7.bekk hafa verið að gefa kertaafgöngum nýtt líf í skapandi endurvinnslu Síðustu vikur hafa nemendur í 7. bekk verið í skemmtilegu og umhverfisvænu verkefni í náttúrufræði.  Gamalt kertavax var brætt upp og endurnýtt til að búa til glæný, handgerð kerti. Verkefnið er liður í aukinni áherslu á sjálfbærni og hringrásarhugsun í skólastarfinu, þar sem markmiðið er að sýna fram á hvernig hægt er að draga úr sóun með einföldum hætti.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 13. nóvember 2026
Síðustu daga hafa nemendur skólans unnið fjölbreytt og skapandi verkefni í tilefni af Degi gegn einelti sem var 8. nóvember. Verkefnin tengdust leikritinu Frelsi sem nemendur í 10. bekk hafa sýnt við mikla hrifningu. Með verkefnavinnunni fengu nemendur tækifæri til að ígrunda mikilvægi vináttu, virðingar, samkenndar og þess að láta sig aðra varða. Leikritið og verkefnin minna okkur öll á mikilvægi þess að skapa skólasamfélag þar sem öllum líður vel, allir fá að vera þeir sjálfir og einelti á ekki heima í samfélaginu.  Saman leggjum við okkar af mörkum til að skapa skóla þar sem virðing, vinátta og vellíðan eru í fyrirrúmi!
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. nóvember 2026
Gleðin og kátínan leyndi sér ekki hjá 3.bekk þegar fyrsti snjórinn féll í morgun. Við fórum því í útikennslu upp á skógrækt þar sem allir skemmtu sér konunglega í snjónum. Samvinna, gleði og vinátta.  Kv. teymið í 3.bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. nóvember 2026
Fyrsti snjórinn kom í dag, gaman að sjá alla saman úti að leika í snjónum.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 10. nóvember 2026
Barnaþing Akraness fór fram dagana 3.–5. nóvember þar sem nemendur úr grunnskólum bæjarins komu saman til að ræða málefni sem skipta börn og ungmenni máli.  Grundaskóli átti flotta fulltrúa frá 5.-10.bekk á þinginu, þar sem þeir komu skoðunum sínum og bekkjarfélaga sinna á framfæri. Umræðurnar snerust meðal annars um bæinn okkar, líðan og vináttu, barnvænan frítíma og jöfn tækifæri fyrir öll. Niðurstöður Barnaþingsins verða svo kynntar á bæjarstjórafundi unga fólksins.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. nóvember 2026
Nemendur í 4. bekk hafa verið að læra um himingeiminn og allt það spennandi sem þar leynist. Í tengslum við verkefnið fengu nemendur að vinna saman í hópum og nýta hugmyndaflugið til fulls við að hanna og búa til sín eigin geimför.  Það var gaman að fylgjast með sköpunargleðinni, samvinnunni og hugmyndunum sem kviknuðu í hópunum. Nemendur þurftu að skipuleggja sig, deila hugmyndum og vinna saman að því að koma geimförunum sínum í framkvæmd.
Show More