Íslenskur blómagarður í 7. bekk

Í tilefni af degi íslenskrar tungu unnu nemendur í 7. bekk skemmtilegt verkefni sem bar heitið Íslenskur blómagarður.
Nemendur bjuggu hver til sitt eigið blóm með fimm blöðum og fylltu þau af íslenskum orðum sem höfðu sérstaka merkingu fyrir þau. Þau völdu meðal annars orð sem minntu þau á eitthvað fallegt, orð sem hljómuðu skemmtilega eða skringilega, gömul íslensk orð, uppáhaldsorðin þeirra og orð sem tengdust fjölskyldu, vináttu og náttúrunni á Íslandi.
Einnig fengu nemendur tækifæri til að velta fyrir sér orðum sem þau höfðu nýlega lært, orðum sem lýstu líðan þeirra og orðum sem þau vildu gjarnan að fleiri þekktu.
Úr varð fjölbreyttur og litríkur íslenskur blómagarður þar sem hvert blóm er einstakt og endurspeglar hugmyndir, upplifanir og orðaval hvers nemanda.
Verkefnið var skemmtileg leið til að vekja athygli á fjölbreytileika íslenskunnar, velta fyrir sér töfrum tungumálsins og minna okkur á hversu dýrmætt það er að eiga fallegt og fjölbreytt móðurmál.









