3.bekkur - Fyrsti snjórinn

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. nóvember 2026

Gleðin og kátínan leyndi sér ekki hjá 3.bekk þegar fyrsti snjórinn féll í morgun. Við fórum því í útikennslu upp á skógrækt þar sem allir skemmtu sér konunglega í snjónum. Samvinna, gleði og vinátta.



Kv. teymið í 3.bekk

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 13. nóvember 2026
Síðustu daga hafa nemendur skólans unnið fjölbreytt og skapandi verkefni í tilefni af Degi gegn einelti sem var 8. nóvember. Verkefnin tengdust leikritinu Frelsi sem nemendur í 10. bekk hafa sýnt við mikla hrifningu. Með verkefnavinnunni fengu nemendur tækifæri til að ígrunda mikilvægi vináttu, virðingar, samkenndar og þess að láta sig aðra varða. Leikritið og verkefnin minna okkur öll á mikilvægi þess að skapa skólasamfélag þar sem öllum líður vel, allir fá að vera þeir sjálfir og einelti á ekki heima í samfélaginu.  Saman leggjum við okkar af mörkum til að skapa skóla þar sem virðing, vinátta og vellíðan eru í fyrirrúmi!
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. nóvember 2026
Fyrsti snjórinn kom í dag, gaman að sjá alla saman úti að leika í snjónum.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 10. nóvember 2026
Barnaþing Akraness fór fram dagana 3.–5. nóvember þar sem nemendur úr grunnskólum bæjarins komu saman til að ræða málefni sem skipta börn og ungmenni máli.  Grundaskóli átti flotta fulltrúa frá 5.-10.bekk á þinginu, þar sem þeir komu skoðunum sínum og bekkjarfélaga sinna á framfæri. Umræðurnar snerust meðal annars um bæinn okkar, líðan og vináttu, barnvænan frítíma og jöfn tækifæri fyrir öll. Niðurstöður Barnaþingsins verða svo kynntar á bæjarstjórafundi unga fólksins.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. nóvember 2026
Nemendur í 4. bekk hafa verið að læra um himingeiminn og allt það spennandi sem þar leynist. Í tengslum við verkefnið fengu nemendur að vinna saman í hópum og nýta hugmyndaflugið til fulls við að hanna og búa til sín eigin geimför.  Það var gaman að fylgjast með sköpunargleðinni, samvinnunni og hugmyndunum sem kviknuðu í hópunum. Nemendur þurftu að skipuleggja sig, deila hugmyndum og vinna saman að því að koma geimförunum sínum í framkvæmd.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 5. nóvember 2026
9.bekkur hefur verið að vinna í Gunnlaugssögu núna síðustu vikurnar. Í tilefni af því fóru þau saman á leikritið Ormstungu í Þjóðleikhúsinu. Leikritið var sýnt á miðvikudagskvöldið 4.nóvember og fóru þau saman í rútu í umsjá foreldra. Leikritið hefur vakið mikla lukku bæði hjá nemendum og allri þjóðinni. Við fengum Daða Rafn nemanda í 9.bekk til þess að segja frá ferðinni og vinnunni: ,,Mér finnst vinnan við Gunnlaugssögu búinn að vera mjög skemmtileg og búin að vera mörg skemmtileg verkefni og auðvitað var ennþá skemmtilegra að fá að sjá leikna sýningu einmitt um það sem við vorum búinn að vera að læra um. Mér fannst persónulega sýningin fín það truflaði mig pínu í aðdragandum hvað hún var seint en það truflaði ekki neitt á endanum. Ég vissi að það var búið að tala mjög vel um sýninguna í samfélaginu að ég hafði miklar væntingar fyrir henni. Það voru nokkur líkindi á leikritinu og sögunni en samt var það líka á sama tíma nokkuð ólíkt. Leikararnir léku sín hlutverk mjög vel, að leikritið fær 4 stjörnur af 5 mögulegum að mínu mati”. Við hvetjum alla til þess að fara á þessa sýningu. Við erum að leggja loka hönd á verkefnin tengd sögunni. Við erum að gera plakat sem sýnir ferðir Gunnlaugs, bragarlaun sem hann hlýtur, veljum fjögur lyndistákn sem okkur finnst lýsa honum vel og veljum eina vísu úr sögunni. 9.bekkur
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 4. nóvember 2026
Starfsáætlun Grundaskóla 2026-2027 hefur nú verið birt á heimasíðu skólans. Hægt er að skoða starfsáætlun ásamt öðrum áætlunum skólans. https://www.grundaskoli.is/aaetlanir-grundaskola
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 3. nóvember 2026
Í síðustu viku komu verðandi 1. bekkingar í heimsókn og fengu tækifæri til að kynnast skólastarfinu í 1. bekk og frístund. Á móti fengu núverandi 1. bekkingar tækifæri til að heimsækja sína gömlu leikskóla. Það var mikill spenningur á báða bóga❤️
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 30. október 2026
Í haust erum við búinn að frá tvo rithöfunda í heimsókn til okkar í 5. bekk til að kynna nýju bækurnar sínar. Ævar Þór Benediktsson kom og kynnti Teiknimyndaránið og Kristrún Guðmundsdóttir kynnti Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla. Við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina. 
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 29. október 2026
Það var líf og fjör hjá stelpunum i 5.KB í heimilisfræði í morgun þegar þær bökuðu græna Nornafingur í tilefni að Hrekkjavökunni. Baksturinn tókst vel og var þetta fullkomin leið á að komast í Hrekkjavökugírinn.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 23. október 2026
Gleðin leynir sér ekki hjá nemendunum 3. bekkjar í útikennslu í skógræktinni.  Allir finna sér eitthvað að gera hvort sem það sem er að smíða, tálga, raka laufblöð, finna skordýr eða bara leika sér og njóta með bekkjarfélögunum í þessu dásamlega umhverfi.
Show More