Skólaráð
Við Grundaskóla starfar skólaráð sem samkvæmt reglum er skipað þremur fulltrúum foreldra, tveimur fulltrúum nemenda, tveimur fulltrúum kennara, einum fulltrúa annarra starfsmanna og skólastjóra/staðgengli sem stjórnar fundum.
Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Það tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar meðal annars um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
Skólaráðið hefur ekki fastan fundartíma en kemur a.m.k. fjórum sinnum saman á hverju skólaári.
Fundargerðir skólaráðsins og ályktanir eru aðgengilegar á heimasíðu skólans.
Helstu verkefni skólaráðs Grundaskóla eru:
- að vera skólastjórn skólans til ráðgjafar og stuðnings í ýmsum málum er varða skólahald,
- að fjalla um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
- að fjalla um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
- að taka þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
- að fylgjast með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
- að fjalla um reglur s.s. skólareglur o.fl. í skólanum,
- að fjalla um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, kennarafundi, almennum starfsmannafundi, nemendafélagi, menntamálaráðuneyti og öðrum aðilum sé þess óskað.
Skólaárið 2026 - 2027 sitja eftirtaldir í skólaráði:
Fulltrúar foreldra: Lóa Guðrún Gísladóttir
Telma Björk Helgadóttir
Jónas Kári Scheving Eiríksson
Fulltrúi Hollvinafélags Grundaskóla: Telma Björk Helgadóttir
Fulltrúar kennara: Alexabdra Rut Oddsdóttir og Örn Arnarson
Fulltrúi annarra starfsmanna: Rósa Björk Bjarnadóttir
Fulltrúar nemenda: Halldór Emil Unnarsson og Styrmir Líndal Gíslason
Skólastjórnendur Sigurður Arnar Sigurðsson, Margrét Ákadóttir og
Kristrún Dögg Marteinsdóttir
Skólaráð hittist að jafnaði fjórum sinnum á ári en oftar ef þörf krefur.
Fundaplan og efni funda:
- September- Nóvember: helstu áhersluþættir í skólastarfinu
- Nóvember-desember: fjárhagsáætlun, ábendingar og umræður
- Febrúar: almennur fundur, spjall og vangaveltur, hugsanlegar framkvæmdir við skólann
- Apríl- maí: hugmyndir að uppstillingu næsta skólaárs, fyrirhugaðar ráðningar og upplýsingar sem liggja fyrir um nemendafjölda.