Systur í heimsókn hjá 8.bekk


Á miðvikudaginn 18. nóvember fékk 8. bekkur heimsókn frá systrunum og fyrrverandi nemendum Grundaskóla, þeim Hörpu og Berglindi Þráinsdætrum.
Þær sögðu nemendum frá fæðingargalla Hörpu, hvaða áhrif það hafði á líf þeirra í Grundaskóla á sínum tíma að vera öðruvísi og hvaða lærdóma mætti draga af þeirra reynslu. Heimsóknin var í tengslum við verkefnið Undur og stórmerki sem nú er unnið í 8. bekk, þar sem lesin er bókin Undur.
Bókin fjallar um drenginn Ágúst sem fæddist með galla í andliti og er að byrja í nýjum skóla með tilheyrandi áskorunum.
Nemendur okkar voru mjög forvitnir og voru einstaklega duglegir að spyrja þær systur, enda þeirra saga um margt svipuð þeirri sem við erum að lesa um í bókinni.
Óhætt er að segja að nemendur hafi lært mikið af þessari heimsókn og þökkum við Hörpu og Berglindi kærlega fyrir að gefa sér tíma og ræða við nemendur.









