Brunavarnir

Viðbrögð þegar viðvörunarkerfið fer í gang

Viðbrögð Þegar viðvörunarkerfið fer í gang: 

 

1.     Kennari og stuðningsfulltrúi safni námshópi sínum saman eða fullvissi sig um að allir nemendur séu í hópnum.
 

2.     Kennari sæki plastvasa með nafnalista hóps síns til að merkja við úti.
 

3.     Kennari og stuðningsfulltrúi verði tilbúnir með hópinn sinn til að yfirgefa húsið. Þegar skipun kemur um það eða viðvörunarkerfið fer í gang að nýju (í annað sinn).

4.     Ef rýma þarf húsið fer kennari/stuðningsfulltrúi með hóp sinn styðstu leið út um næsta útgang og sér til þess að allir í hópnum fari á sinn söfnunarstað úti. Hver bekkur bíður í beinni röð fyrir framan kennara sinn.

 

·       Söfnunarstaður Yngsta stigs (1.-3. bekkur) er á fótboltavelli fyrir framan leiksvið.

 

·       Söfnunarstaður Eyjunnar (4.-5. bekkur) er á horni lóðar (grasi) nálægt “rennunni”.

 

·       Söfnunarstaður Miðstig (6.-7. bekkur) er við tröppur/körfuboltavöll stigsins.

 

·       Söfnunarstaður Eldra Unglingastigs (8.-10. bekkur) er á gervigrasvellinum.

 

5.     Skólaliðar haldi sig á kennslusvæðum, meti hvaða rýmingarleið er best og aðstoði kennara/stuðningsfulltrúa við rýmingu skólans.
 

6.     Þegar allir eru komnir á sín söfnunarsvæði merkir kennari við og fer yfir nafnalistann til að fullvissa sig um að allir í hópnum hafi komist út. Um leið og kennari er búinn að fara yfir nafnalistann veifar hann spjaldi sem finna má í plastvasanum. Grænu spjaldi ef allir í hópnum eru á staðnum, rauðu spjaldi ef einhvern úr hópnum vantar.

 

7.     Starfsfólk heldur ró sinni á meðan á þessu stendur og fylgir sínu hlutverki
 

8.     Kennari/stuðningsfulltrúi bíða með hópnum og fá skilaboð framhaldið.