,,Stjörnu Sævar" heimsótti Grundaskóla og fræddi um sólmyrkvann 2026

Heiða Viðarsdóttir • 27. maí 2026

Í dag fékk Grundaskóli skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar ,,Stjörnu Sævar" kom í skólann og miðlaði fróðleik um sólmyrkva/almyrkva til nemenda og starfsfólks.


Í heimsókninni sagði hann frá því hvað gerist þegar tunglið færist á milli jarðar og sólar og skyggir á sólarljósið. Nemendur fengu að heyra ýmsa áhugaverða fróðleiksmola um almyrkva á sólu og hvers vegna slíkur atburður er talinn ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar.


Sérstök áhersla var lögð á þann merkilega viðburð sem fram undan er, þegar almyrkvi verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026. Þá mun myrkvinn ganga yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en víðar í Evrópu, Skandinavíu, Vestur-Afríku og norðurhluta Norður-Ameríku verður hægt að sjá deildarmyrkva.


Fyrir þau sem vilja kynna sér efnið betur má finna fjölbreyttar upplýsingar um sólmyrkvann á solmyrkvi2026.is.


Akraneskaupstaður hyggst einnig færa öllum nemendum kaupstaðarins sólmyrkvagleraugu að gjöf svo þau geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan hátt.



Við þökkum ,,Stjörnu Sævari" kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með þessum stórmerkilega viðburði.

Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Á níunda hundrað manns, nemendur Grundaskóla, starfsfólk og gestir komu í dag og dönsuðu saman í tilefni 45 ára afmælis skólans.  Hér ríkir bæði gleði og samstaða. 😍 😍 😍
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Kvöld og um helgar vinna foreldrar í samvinnu við börn sín og starfsfólk skólans að uppsetningu á söngleiknum Frelsi. Takk fyrir samvinnuna gott fólk - Við erum sterk liðsheild í Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. október 2026
Til hamingju með daginn - Grundaskóli 45 ára.  Í dag fagnar Grundaskóli 45 ára afmæli, en skólinn tók fyrst til starfa þann 6. október 1981.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. október 2026
Nemendur 3. bekkjar bjuggu til þessar fallegu afmælisblöðrur og óska Grundaskóla til hamingju með 45 ára afmælið með þessum fallegu orðum.  Bestu kveðjur 3. bekkur
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember.  Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 5. október 2026
Formenn Nemendafélagsins færðu Alexander Helga gjöf
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 5. október 2026
Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu. Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi. Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994.  Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Í vikunni fengum við góða gesti frá Tékklandi í heimsókn í Grundaskóla. Um er að ræða starfshóp sem vinnur að menntastefnu landsins til ársins 2030. Gestirnir fengu kynningu á starfsemi og áherslum Grundaskóla, skoðuðu skólann og ræddu við bæði nemendur og starfsfólk. Heimsókninni lauk með samráðsfundi þar sem gestunum gafst tækifæri til að spyrja nánar út í skipulag skólastarfsins, kennsluhætti og þær áherslur sem einkenna starf skólans. Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við barna- og menntamálaráðuneytið. Gestirnir lýstu mikilli ánægju með heimsóknina og voru sérstaklega hrifnir af aðstæðum, umhverfi og því starfi sem fram fer í Grundaskóla.  Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla af reynslu okkar, eiga samtal um skólaþróun og kynnast um leið áherslum og reynslu fólks sem starfar að menntamálum í öðrum löndum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Þegar skemmtileg stærðfræðiþraut bíður nemanda í unglingadeild eru nemendur mættir fyrir allar aldir til að reyna að leysa hana 😃
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun.  Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Næsta tímasetning er miðvikudagurinn 7. okt. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann (2000 kr. á par) og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊
Show More