Fræðsla í 10. bekk

Heiða Viðarsdóttir • 27. maí 2026

Á þriðjudaginn fengu nemendur í 10. bekk fyrirlestur frá Salóme skólahjúkrunarfræðing um ábyrgð á eigin heilsu og hverju þau þurfa að huga að eftir að þau útskrifast úr grunnskóla þegar þau hafa sjálf aðgang að heilsuveru.


Salóme fór einnig yfir mikilvægi næringar og hversu nauðsynlegt það er að borða hollan og góðan mat reglulega yfir daginn. 


Nemendur fengu góð ráð um hvernig hægt er að stuðla að betri líðan og heilsu með heilbrigðum venjum í daglegu lífi.


Áhugaverður og þarfur fyrirlestur sem vakti nemendur til umhugsunar um mikilvægi þess að hugsa vel um eigin heilsu 

Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. maí 2026
Í dag fékk Grundaskóli skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar ,,Stjörnu Sævar" kom í skólann og miðlaði fróðleik um sólmyrkva/almyrkva til nemenda og starfsfólks. Í heimsókninni sagði hann frá því hvað gerist þegar tunglið færist á milli jarðar og sólar og skyggir á sólarljósið. Nemendur fengu að heyra ýmsa áhugaverða fróðleiksmola um almyrkva á sólu og hvers vegna slíkur atburður er talinn ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Sérstök áhersla var lögð á þann merkilega viðburð sem fram undan er, þegar almyrkvi verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026 . Þá mun myrkvinn ganga yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en víðar í Evrópu, Skandinavíu, Vestur-Afríku og norðurhluta Norður-Ameríku verður hægt að sjá deildarmyrkva. Fyrir þau sem vilja kynna sér efnið betur má finna fjölbreyttar upplýsingar um sólmyrkvann á solmyrkvi2026.is . Akraneskaupstaður hyggst einnig færa öllum nemendum kaupstaðarins sólmyrkvagleraugu að gjöf svo þau geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan hátt.  Við þökkum ,,Stjörnu Sævari" kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með þessum stórmerkilega viðburði.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 26. maí 2026
Kynning á landskeppni barna í myndasögugerð. Íslenska Myndasögusamfélagið kynnir keppni í myndasögugerð fyrir börn frá 8.ára aldri.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 21. maí 2026
Krakkarnir í 5.bekk nutu góða veðursins í dag.  Útitíminn var nýttur vel í listsköpun og allskonar leiki á skólalóðinni.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. maí 2026
Í dag fengu nemendur í 10.bekk heimsókn frá Samfélagslögreglunni á Vesturlandi með fræðslu um vímuefnavarnir.  Markmið fræðslunnar er: Að nemendur þekki raunverulega stöðu notkunar algengum vímuefnum meðal unglinga. Að nemendur skilji afleiðingar af notkun vímuefna og ávanabindandi efna m.a. nikótíns og áfengis. Að nemendur æfi sig í að standast hópþrýsting og segja nei. Að nemendur passi upp á vini sína. Við þökkum Garðari kærlega fyrir komuna og tímann sem hann gaf sér í að spjalla við unglingana eftir fræðsluna.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 15. maí 2026
Við í 7.bekk fórum í Reykjaskóla mánudaginn 4.maí og komum heim fimmtudaginn 7.maí, ásamt skólunum í Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman t.d. hlusta á sögu um Grettir, fórum á Byggðasafnið, spiluðum gaga bolta og fórum í allskonar hópeflisleiki. Einnig var sundlaugar partí þar sem flestir fóru ofan í og það kom froðuvél, tískusýning þar sem krakkar voru klæddir upp í búninga og málaðir og ball þar sem allir sungu, dönsuðu og höfðu gaman. Ferðin gekk mjög vel og allir skemmtu sér vel.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 13. maí 2026
Í dag fórum við í sveitaferð að Miðdal í Kjós. Við fengum mjög góðar móttökur og dagurinn var frábær í alla staði. Veðrið lék við okkur og börnin nutu sín vel í sveitinni. Gillaðar voru pylsur í hádeginu og allir fengu svala og kex.  Hér fylgja nokkrar myndir með:
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 13. maí 2026
Í gær fengum við í 1. bekk góða heimsókn frá Kiwanis. Við fengum fræðslu um mikilvægi notkunar reiðhjólahjálma. Þau gáfu okkur einnig reiðhjólahjálma, buff og endurskinsmerki. Við erum Kiwanis afar þakklát.  Takk fyrir okkur. Kveðja 1. bekkur
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. maí 2026
Í dag breyttist skólastarfið aðeins þegar allir nemendur og starfsfólk skólans tóku þátt í sameiginlegum tiltektardegi í kringum skólann. Nemendur unnu saman í hópum og lögðu sig fram við að gera skólalóðina og nærumhverfið fallegra. Stemningin var góð og gaman að sjá hvað samvinna, dugnaður og jákvætt viðhorf geta skilað miklu. Svona dagar minna okkur á mikilvægi þess að bera sameiginlega ábyrgð á umhverfinu okkar.  Við erum afar stolt af okkar öflugu nemendum og starfsfólki sem tóku virkan þátt í deginum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. maí 2026
Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi sem FVA stendur fyrir, fór fram 17. apríl sl og tóku 114 nemendur þátt. Innilega til hamingju með frábæran árangur Úrslit á heimasíðu FVA
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. maí 2026
10. bekkur fór í vel heppnaða og skemmtilega lokaferð í Skagafjörðinn í síðustu viku. Veðrið lék við okkur, þótt það hafi verið kalt og léku nemendur á alls oddi í þrautabraut, fljótasiglingu og litabolta. Þess á milli fengu nemendur frjálsan tíma sem var meðal annars vel nýttur í sund- og sjoppuferðir, körfubolta og almenna afslöppun. Stemningin í hópnum var frábær og nemendur stóðu sig með miklum sóma alla ferðina. Það var gaman að sjá hversu vel þau nutu samverunnar og sköpuðu skemmtilegar minningar saman á þessum síðustu vikum grunnskólagöngunnar. Við fengum frábærar móttökur á Bakkaflöt og í félagsheimilinu Miðgarði – þökkum kærlega fyrir okkur!! Frábær endapunktur á vetrinum.
Show More