Fræðsla frá Lyfjaeftirlitinu

Um ólögleg frammistöðubætandi efni
Lyfjaeftirlitið heimsótti skólann í dag og bauð nemendum í 8.–10. bekk upp á fræðslu um ólögleg frammistöðubætandi efni og áhrif þeirra.
Markmið fræðslunnar var að efla vitund og skilning nemenda á mögulegum skaðlegum áhrifum slíkra efna, ræða orsakir og afleiðingar notkunar þeirra og stuðla að heilbrigðri líkams- og sjálfsmynd.
Á fræðslunni var meðal annars fjallað um áhrif samfélagsmiðla, auglýsinga og fyrirmynda á viðhorf okkar til líkama og útlits. Nemendur fengu jafnframt tækifæri til að efla gagnrýna hugsun gagnvart upplýsingum á netinu og læra að þekkja rangfærslur og óraunhæfar fyrirmyndir.
Lögð var áhersla á að styrkja sjálfstraust nemenda og veita þeim þekkingu og verkfæri til að standa gegn hópþrýstingi og freistingum til notkunar ólöglegra frammistöðubætandi efna.
Við þökkum Lyfjaeftirlitinu kærlega fyrir fræðandi og mikilvæga heimsókn. Slík fræðsla er dýrmætt innlegg í að efla heilbrigða sjálfsmynd, gagnrýna hugsun og vellíðan nemenda.









