Nemendur í 9. og 10. bekk
Heiða Viðarsdóttir • 13. nóvember 2025

Tóku þátt í Barnaþingi Akraness
Í dag tók hópur nemenda úr 9. og 10. bekk þátt í Barnaþingi Akraness, þar sem þeir ræddu málefni líðandi stundar ásamt jafnöldrum sínum úr Brekkubæjarskóla og fulltrúum Ungmennaráðs Akraness.
Á þinginu voru tekin fyrir fjölbreytt og áhugaverð málefni sem tengjast unglingum og nærumhverfi þeirra, og mynduðust líflegar og uppbyggilegar umræður.
Í framhaldinu verða niðurstöður þingsins kynntar á Bæjarstjórnarfundi unga fólksins, sem haldinn verður síðar á árinu.
Fulltrúar frá sjónvarpsþættinum Landanum voru á staðnum, kvikmynduðu viðburðinn og tóku viðtöl við þátttakendur.
Þátturinn verður sýndur næstkomandi sunnudag, 16.11, og hvetjum við alla til að fylgjast með.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk














