Frétt frá 10.bekk
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 28. nóvember 2025

Alltaf nóg um að vera hjá 10.bekk. Í síðustu viku lauk sýningum á söngleiknum Smell. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og hefur þetta verið heilmikill lærdómur fyrir þau og allt 10.bekkjarteymið.
Núna tekur við nýtt verkefni. Þar læra nemendur um mannréttindabaráttur og aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku í bland við lestur á bókinni Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah. Við erum að prófa okkur áfram með glósuaðferð þar sem nemendur teikna myndir eftir hvern kafla til þess að hjálpa sér að muna söguþráðinn.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna. Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember. Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
5. október 2026
Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu. Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi. Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994. Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
2. október 2026
Í vikunni fengum við góða gesti frá Tékklandi í heimsókn í Grundaskóla. Um er að ræða starfshóp sem vinnur að menntastefnu landsins til ársins 2030. Gestirnir fengu kynningu á starfsemi og áherslum Grundaskóla, skoðuðu skólann og ræddu við bæði nemendur og starfsfólk. Heimsókninni lauk með samráðsfundi þar sem gestunum gafst tækifæri til að spyrja nánar út í skipulag skólastarfsins, kennsluhætti og þær áherslur sem einkenna starf skólans. Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við barna- og menntamálaráðuneytið. Gestirnir lýstu mikilli ánægju með heimsóknina og voru sérstaklega hrifnir af aðstæðum, umhverfi og því starfi sem fram fer í Grundaskóla. Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla af reynslu okkar, eiga samtal um skólaþróun og kynnast um leið áherslum og reynslu fólks sem starfar að menntamálum í öðrum löndum.











