Grundaskóli og útvarp Akranes
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 28. nóvember 2025

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
29. maí 2026
Í dag var uppskeruhátíð lestrarkeppninnar á sal skólans. Það var 3. bekkur sem las mest allra árganga í skólanum eða alls 27.881 mínútur. Einnig voru veitt verðlaun til þeirra nemenda sem lásu mest í sínum árgangi. 1. bekkur – Slavör Tinna Magnúsdóttir (477 mín) 2. bekkur – Málfríður Hekla Magnúsdóttir (686 mín) 3. bekkur – Sylvía Sól Styrmisdóttir (2335 mín) 4. bekkur – Valur Örn Reynisson ( 1797 mín) 5. bekkur – Aníta Fönn Gísladóttir (3410 mín) 6. bekkur – Þorri Kristján Jónsson (2159 mín ) 7. bekkur – Inga Marne Brynjarsdóttir (2190 mín) 8. bekkur – Ína Karen Vigfúsdóttir (2540 mín) 9. bekkur – tók ekki þátt 10. bekkur – Heiðdís Tinna Daðadóttir (1053 mín) Í heildina las skólinn 116.924 mínútur sem eru: 1.948,7 klukkustundir 243,6 vinnudagar (8 klukkutíma vinnudagur) 81,2 sólahringar Frábær árangur hjá nemendum okkar.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
27. maí 2026
Í dag fékk Grundaskóli skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar ,,Stjörnu Sævar" kom í skólann og miðlaði fróðleik um sólmyrkva/almyrkva til nemenda og starfsfólks. Í heimsókninni sagði hann frá því hvað gerist þegar tunglið færist á milli jarðar og sólar og skyggir á sólarljósið. Nemendur fengu að heyra ýmsa áhugaverða fróðleiksmola um almyrkva á sólu og hvers vegna slíkur atburður er talinn ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Sérstök áhersla var lögð á þann merkilega viðburð sem fram undan er, þegar almyrkvi verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026 . Þá mun myrkvinn ganga yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en víðar í Evrópu, Skandinavíu, Vestur-Afríku og norðurhluta Norður-Ameríku verður hægt að sjá deildarmyrkva. Fyrir þau sem vilja kynna sér efnið betur má finna fjölbreyttar upplýsingar um sólmyrkvann á solmyrkvi2026.is . Akraneskaupstaður hyggst einnig færa öllum nemendum kaupstaðarins sólmyrkvagleraugu að gjöf svo þau geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan hátt. Við þökkum ,,Stjörnu Sævari" kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með þessum stórmerkilega viðburði.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
27. maí 2026
Á þriðjudaginn fengu nemendur í 10. bekk fyrirlestur frá Salóme skólahjúkrunarfræðing um ábyrgð á eigin heilsu og hverju þau þurfa að huga að eftir að þau útskrifast úr grunnskóla þegar þau hafa sjálf aðgang að heilsuveru. Salóme fór einnig yfir mikilvægi næringar og hversu nauðsynlegt það er að borða hollan og góðan mat reglulega yfir daginn. Nemendur fengu góð ráð um hvernig hægt er að stuðla að betri líðan og heilsu með heilbrigðum venjum í daglegu lífi. Áhugaverður og þarfur fyrirlestur sem vakti nemendur til umhugsunar um mikilvægi þess að hugsa vel um eigin heilsu

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. maí 2026
Í dag fengu nemendur í 10.bekk heimsókn frá Samfélagslögreglunni á Vesturlandi með fræðslu um vímuefnavarnir. Markmið fræðslunnar er: Að nemendur þekki raunverulega stöðu notkunar algengum vímuefnum meðal unglinga. Að nemendur skilji afleiðingar af notkun vímuefna og ávanabindandi efna m.a. nikótíns og áfengis. Að nemendur æfi sig í að standast hópþrýsting og segja nei. Að nemendur passi upp á vini sína. Við þökkum Garðari kærlega fyrir komuna og tímann sem hann gaf sér í að spjalla við unglingana eftir fræðsluna.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
15. maí 2026
Við í 7.bekk fórum í Reykjaskóla mánudaginn 4.maí og komum heim fimmtudaginn 7.maí, ásamt skólunum í Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman t.d. hlusta á sögu um Grettir, fórum á Byggðasafnið, spiluðum gaga bolta og fórum í allskonar hópeflisleiki. Einnig var sundlaugar partí þar sem flestir fóru ofan í og það kom froðuvél, tískusýning þar sem krakkar voru klæddir upp í búninga og málaðir og ball þar sem allir sungu, dönsuðu og höfðu gaman. Ferðin gekk mjög vel og allir skemmtu sér vel.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
13. maí 2026
Í dag fórum við í sveitaferð að Miðdal í Kjós. Við fengum mjög góðar móttökur og dagurinn var frábær í alla staði. Veðrið lék við okkur og börnin nutu sín vel í sveitinni. Gillaðar voru pylsur í hádeginu og allir fengu svala og kex. Hér fylgja nokkrar myndir með:




