Baráttudagur gegn einelti
Heiða Viðarsdóttir • 7. nóvember 2025

Laugardaginn 8. nóvember er BARÁTTUDAGUR gegn einelti
Á morgun, laugardaginn 8. nóvember, er Baráttudagur gegn einelti.
Markmið dagsins er að hvetja til umræðu, fræðslu og viðburða sem miða að því að vinna gegn einelti, efla jákvæð samskipti og stuðla að vináttu.
Í tilefni dagsins hittust allir nemendur Grundaskóla og Brekkubæjarskóla í dag við stjórnsýsluhúsið að Stillholti. Þar trommuðu þeir saman í sjö mínútur – eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar sem við viljum hafa lausan við einelti.
Meðfylgjandi eru myndir af vinnu nemenda í tengslum við daginn.
Ein falleg setning sem varð til í 3. bekk fangar boðskap dagsins einstaklega vel:
„Góður vinur er betri en allur heimsins auður.“

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk













