Villt þú taka þátt í Opna skólanum?
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 1. júní 2026

Vilt þú taka þátt í Opna skólanum? Erum við að leita að þér?
Við leitum að skemmtilegum hugmyndum og áhugasömu einstaklingum sem vilja koma og leiðbeina nemendum og foreldrum saman á frístundanámskeiðum.
Allir í skólasamfélaginu geta verið með pabbar, mömmur, afar og ömmur.
Námskeiðin geta verið innan og utan skólatíma, virka daga sem um helgar. Allt eftir hvað hentar. Í vetur hafa hátt í 50 námskeið verið í Opna skólanum (fyrir nemendur, nemendur og foreldra eða bara foreldra) og þátttaka hefur verið mjög góð.
Hugmyndir og ábendingar má senda á netfangið: grundaskoli@grundaskoli.is


Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
14. október 2026
Nú eru Förustafirnir farnir að stækka það mikið að óhætt er að taka þá úr búrinu. Þeir vekja mikla lukku hjá mörgum nemendum sem vilja ólmir taka þá til sín og leyfa þeim að vera með sér á meðan þeir eru í kennslustund. Förustafirnir eru farnir að fá hin ýmsu nöfn á meðan þeir eru að læra með nemendum. Það er gaman að fylgjast með áhuga nemenda á þessu saklausu dýrum í náttúrfræðistofunni.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna. Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember. Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
5. október 2026
Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu. Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi. Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994. Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.





