Útikennsla hjá 1. bekk

Heiða Viðarsdóttir • 1. júní 2026

Fyrsti bekkur notaði tækifærið í góða veðrinu í vikunni og skelltu sér í útikennslu.


Krakkarnir voru alsæl með að læra úti.


Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 1. júní 2026
Stúlkurnar í yngri kór Grundaskóla 3. – 4.bekkur sungu tónleikana Vísnabókin með Sinfóníuhljómsveit Íslands í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum ásamt Barnakór Akraneskirkju við mikinn fögnuð þann 15.maí síðastliðinn. Gestir tónleikana voru leikskólabörn í elstu deild leikskóla og grunnskólabörn í 1.-4.bekk. Stúlkurnar voru vel undirbúnar og búnar að æfa lögin í marga mánuði sem skilaði sér aldeilis og þær fengu sérstakt hrós frá hljóðfæraleikurum hljómsveitarinnar. Stúlkurnar í Skólakór Grundaskóla eldri 5. - 7.bekk, tóku þátt í Norðurlandamóti barna- og ungmenna í kórstöng, Norbusang dagana 13.-16.maí. Þar til gerð mót eru ekki stíluð á keppni heldur syngja börnin saman í smiðjum og læra lög til að flytja síðan á lokatónleikum hátíðarinnar. Börnin voru á aldrinum 9-25 ára og 300 talsins frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Íslandi. Hátíðin fór fram í Kópavoginum nánartiltekið í Kársnesskóla, Barnaskóla Kársnes og Digraneskirkju, en þar fóru einnig fram lokatónleikarnir þar sem forsetinn, Halla Tómasdóttir sat á fremsta bekk en hún var í kór sem barn hjá Tótu sem var með smiðju á Norbusang í ár. Smiðjustjórar voru Siggi og Ingibjörg, sem stjórnar þáttunum Þjóðsögukistunni á rúv. Þau voru með klappleiki og Grundaskóla stúlkurnar tóku þátt í þeirri smiðju og skemmtu sér konunglega. Kórstjórinn þeirra, undirrituð, er í stjórn Ungíkór Ísland, nýstofnuðum samtökum sem skipulögðu mótið ásamt verkefnastjóranum, Sunnu Karen Einarsdóttur. Á næsta ári verður Norbusang í Svíþjóð og eru meðlimir kórsins strax farnir að undirbúa það ferðalag og eftirvæntingin er mikil. Frumflutt verk frá Tryggva M. Baldvinssyni var sameiginlega verkið sem öll börnin 300 sungu saman. Það var mjög áhrifamikið og minnir okkur á hvað kórastarf er mikilvægur partur af uppeldi barna, tónlistarlegu sem og almennu, þar sem allir eru partur af heildinni óháð kyni og uppruna. Vortónleikarnir verða síðan með óhefðbundnu sniði í ár þar sem þeir fara fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum þann 7.júní 2026.  Skólakórinn syngur fyrir sundlaugargesti og hvetur til samsöng. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Sjmannadagsins á Akranesi. Með okkur verða Halla Jónsdóttir og Heiðmar Eyjólfsson. Lilja Margrét Riedel, kórstjóri Skólakórs Grundaskóla.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 1. júní 2026
Vilt þú taka þátt í Opna skólanum? Erum við að leita að þér? Við leitum að skemmtilegum hugmyndum og áhugasömu einstaklingum sem vilja koma og leiðbeina nemendum og foreldrum saman á frístundanámskeiðum. Allir í skólasamfélaginu geta verið með pabbar, mömmur, afar og ömmur.  Námskeiðin geta verið innan og utan skólatíma, virka daga sem um helgar. Allt eftir hvað hentar. Í vetur hafa hátt í 50 námskeið verið í Opna skólanum (fyrir nemendur, nemendur og foreldra eða bara foreldra) og þátttaka hefur verið mjög góð. Hugmyndir og ábendingar má senda á netfangið: grundaskoli@grundaskoli.is
Eftir Heiða Viðarsdóttir 29. maí 2026
Í dag var uppskeruhátíð lestrarkeppninnar á sal skólans. Það var 3. bekkur sem las mest allra árganga í skólanum eða alls 27.881 mínútur. Einnig voru veitt verðlaun til þeirra nemenda sem lásu mest í sínum árgangi. 1. bekkur – Salvör Tinna Magnúsdóttir 2. bekkur – Málfríður Hekla Magnúsdóttir 3. bekkur – Sylva Sól Styrmisdóttir 4. bekkur – Valur Örn Reynisson 5. bekkur – Aníta Fönn Gísladóttir 6. bekkur – Þorri Kristján Jónsson 7. bekkur – Inga María Brynjarsdóttir 8. bekkur – Ína Karen Vigfúsdóttir 10. bekkur – Heiðdís Tinna Daðadóttir Í heildina las skólinn 116.924 mínútur sem eru: 1.948,7 klukkustundir 243,6 vinnudagar (8 klukkutíma vinnudagur) 81,2 sólarhringar Frábær árangur hjá nemendum okkar.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 28. maí 2026
Í góða veðrinu undanfarið hafa börnin verið að kríta þessi flottu listaverk á skólalóðina. 
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. maí 2026
Í dag fékk Grundaskóli skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar ,,Stjörnu Sævar" kom í skólann og miðlaði fróðleik um sólmyrkva/almyrkva til nemenda og starfsfólks. Í heimsókninni sagði hann frá því hvað gerist þegar tunglið færist á milli jarðar og sólar og skyggir á sólarljósið. Nemendur fengu að heyra ýmsa áhugaverða fróðleiksmola um almyrkva á sólu og hvers vegna slíkur atburður er talinn ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Sérstök áhersla var lögð á þann merkilega viðburð sem fram undan er, þegar almyrkvi verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026 . Þá mun myrkvinn ganga yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en víðar í Evrópu, Skandinavíu, Vestur-Afríku og norðurhluta Norður-Ameríku verður hægt að sjá deildarmyrkva. Fyrir þau sem vilja kynna sér efnið betur má finna fjölbreyttar upplýsingar um sólmyrkvann á solmyrkvi2026.is . Akraneskaupstaður hyggst einnig færa öllum nemendum kaupstaðarins sólmyrkvagleraugu að gjöf svo þau geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan hátt.  Við þökkum ,,Stjörnu Sævari" kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með þessum stórmerkilega viðburði.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. maí 2026
Á þriðjudaginn fengu nemendur í 10. bekk fyrirlestur frá Salóme skólahjúkrunarfræðing um ábyrgð á eigin heilsu og hverju þau þurfa að huga að eftir að þau útskrifast úr grunnskóla þegar þau hafa sjálf aðgang að heilsuveru. Salóme fór einnig yfir mikilvægi næringar og hversu nauðsynlegt það er að borða hollan og góðan mat reglulega yfir daginn. Nemendur fengu góð ráð um hvernig hægt er að stuðla að betri líðan og heilsu með heilbrigðum venjum í daglegu lífi. Áhugaverður og þarfur fyrirlestur sem vakti nemendur til umhugsunar um mikilvægi þess að hugsa vel um eigin heilsu
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 26. maí 2026
Kynning á landskeppni barna í myndasögugerð. Íslenska Myndasögusamfélagið kynnir keppni í myndasögugerð fyrir börn frá 8.ára aldri.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 21. maí 2026
Krakkarnir í 5.bekk nutu góða veðursins í dag.  Útitíminn var nýttur vel í listsköpun og allskonar leiki á skólalóðinni.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. maí 2026
Í dag fengu nemendur í 10.bekk heimsókn frá Samfélagslögreglunni á Vesturlandi með fræðslu um vímuefnavarnir.  Markmið fræðslunnar er: Að nemendur þekki raunverulega stöðu notkunar algengum vímuefnum meðal unglinga. Að nemendur skilji afleiðingar af notkun vímuefna og ávanabindandi efna m.a. nikótíns og áfengis. Að nemendur æfi sig í að standast hópþrýsting og segja nei. Að nemendur passi upp á vini sína. Við þökkum Garðari kærlega fyrir komuna og tímann sem hann gaf sér í að spjalla við unglingana eftir fræðsluna.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 15. maí 2026
Við í 7.bekk fórum í Reykjaskóla mánudaginn 4.maí og komum heim fimmtudaginn 7.maí, ásamt skólunum í Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman t.d. hlusta á sögu um Grettir, fórum á Byggðasafnið, spiluðum gaga bolta og fórum í allskonar hópeflisleiki. Einnig var sundlaugar partí þar sem flestir fóru ofan í og það kom froðuvél, tískusýning þar sem krakkar voru klæddir upp í búninga og málaðir og ball þar sem allir sungu, dönsuðu og höfðu gaman. Ferðin gekk mjög vel og allir skemmtu sér vel.
Show More