Uppgjör vorannar Skólakórs Grundaskóla

Stúlkurnar í yngri kór Grundaskóla 3. – 4.bekkur sungu tónleikana Vísnabókin með Sinfóníuhljómsveit Íslands í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum ásamt Barnakór Akraneskirkju við mikinn fögnuð þann 15.maí síðastliðinn. Gestir tónleikana voru leikskólabörn í elstu deild leikskóla og grunnskólabörn í 1.-4.bekk. Stúlkurnar voru vel undirbúnar og búnar að æfa lögin í marga mánuði sem skilaði sér aldeilis og þær fengu sérstakt hrós frá hljóðfæraleikurum hljómsveitarinnar.
Stúlkurnar í Skólakór Grundaskóla eldri 5. - 7.bekk, tóku þátt í Norðurlandamóti barna- og ungmenna í kórstöng, Norbusang dagana 13.-16.maí.
Þar til gerð mót eru ekki stíluð á keppni heldur syngja börnin saman í smiðjum og læra lög til að flytja síðan á lokatónleikum hátíðarinnar.
Börnin voru á aldrinum 9-25 ára og 300 talsins frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Íslandi.
Hátíðin fór fram í Kópavoginum nánartiltekið í Kársnesskóla, Barnaskóla Kársnes og Digraneskirkju, en þar fóru einnig fram lokatónleikarnir þar sem forsetinn, Halla Tómasdóttir sat á fremsta bekk en hún var í kór sem barn hjá Tótu sem var með smiðju á Norbusang í ár.
Smiðjustjórar voru Siggi og Ingibjörg, sem stjórnar þáttunum Þjóðsögukistunni á rúv. Þau voru með klappleiki og Grundaskóla stúlkurnar tóku þátt í þeirri smiðju og skemmtu sér konunglega. Kórstjórinn þeirra, undirrituð, er í stjórn Ungíkór Ísland, nýstofnuðum samtökum sem skipulögðu mótið ásamt verkefnastjóranum, Sunnu Karen Einarsdóttur. Á næsta ári verður Norbusang í Svíþjóð og eru meðlimir kórsins strax farnir að undirbúa það ferðalag og eftirvæntingin er mikil.
Frumflutt verk frá Tryggva M. Baldvinssyni var sameiginlega verkið sem öll börnin 300 sungu saman. Það var mjög áhrifamikið og minnir okkur á hvað kórastarf er mikilvægur partur af uppeldi barna, tónlistarlegu sem og almennu, þar sem allir eru partur af heildinni óháð kyni og uppruna.
Vortónleikarnir verða síðan með óhefðbundnu sniði í ár þar sem þeir fara fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum þann 7.júní 2026.
Skólakórinn syngur fyrir sundlaugargesti og hvetur til samsöng. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Sjmannadagsins á Akranesi. Með okkur verða Halla Jónsdóttir og Heiðmar Eyjólfsson.
Lilja Margrét Riedel, kórstjóri Skólakórs Grundaskóla.



















