Múrbalasláttur
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 27. nóvember 2026

Í dag fengu rúmlega 60 nemendur í 5. bekk heldur betur óvenjulega tónlistarupplifun þegar þeir Keli og Siggi á vegum ,,List fyrir alla" komu í heimsókn og kenndu krökkunum múrbalaslátt.
Hljóðfærin voru ekki alveg þau hefðbundnu. 60 múrbalar og 120 trommukjuðar mynduðu saman ótrúlegan takt og magnaða upplifun. Nemendur fengu að prófa sig áfram, hlusta, fylgja taktinum og spila saman sem einn stór hópur.
Einbeitingin, samvinnan og gleðin skein úr hverju andliti og það var greinilegt að krakkarnir nutu sín í botn.
Það er eitthvað sérstakt við að upplifa tónlist á svona óhefðbundinn og skemmtilegan hátt

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
27. nóvember 2026
Fimmtudaginn 3. desember verður hinn árlegi markaður Grundaskóla, „Breytum krónum í gull“ , í nýja íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Markaðurinn er opinn frá kl. 11:15 –12:30. Gengið er inn um aðalinngang íþróttahússins, gegnt inngangi sundlaugarinnar. Á markaðnum verður fjölbreyttur varningur til sölu sem nemendur og starfsfólk hafa útbúið. Einnig verður hægt að kaupa veitingar og njóta skemmtilegrar stundar í íþróttahúsinu. Allur ágóði markaðarins rennur til hjálparstarfs Rauða krossins í Malaví , þar sem áhersla er lögð á stuðning við börn, ungar konur og menntun. Við hvetjum foreldra og aðra bæjarbúa eindregið til að líta við, sjá afrakstur skapandi vinnu nemenda og styðja um leið gott málefni. Við hlökkum til að sjá ykkur á markaðnum .

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
26. nóvember 2026
Nemendur í 1.–7. bekk fengu afhent endurskinsmerki frá ÍA (íþróttabandalaginum) og geta því nú látið sjá sig enn betur í umferðinni. Hér má sjá hressa nemendur í 7. bekk með flottu ÍA-endurskinsmerkin sín. Við þökkum ÍA kærlega fyrir framtakið og mikilvæga áminningu um öryggi í umferðinni

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
26. nóvember 2026
Nemendur í 2. bekk sem æfa á víólur og fiðlur spiluðu fyrir árganginn sinn. Þau buðu krökkunum fram á sameiginlega svæðið okkar þar sem þau létu ljós sitt skína ásamt kennara sínum úr tónlistarskólanum. Þetta var virkilega góð og skemmtileg stund.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
25. nóvember 2026
Nemendur í 9. bekk hafa verið að læra um meltingarkerfi mannsins. Í vikunni gerðu þau skemmtilega tilraun til að sjá hvernig líkaminn brýtur niður fitu. Í tilrauninni notuðu nemendur nýmjólk, matarlit og uppþvottalög. Sápan átti að líkja eftir galli í líkamanum, en hlutverk galls er að brjóta niður fitu í matnum svo auðveldara sé að melta hana.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
24. nóvember 2026
Nemendur í 8. bekk hafa verið að gera spennandi tilraun í náttúrufræði. Þau einangruðu erfðaefni (DNA) úr jarðarberjum. Verkefnið var unnið í tengslum við lestur á bókinni Undur, þar sem erfðir koma við sögu, og gaf nemendum tækifæri til að sjá sjálft erfðaefnið með berum augum.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
23. nóvember 2026
Grundaskóli átti glæsilega fulltrúa á farsældarþinginu og þrír þeirra fluttu fyrirlestra um starfsemi í skólanum og þá verkþætti sem eru við líði hér. Fyrirlesarar voru þau Ingibjörg Stefáns, Christel og Hilmar Halldórss. Erindi þeirra hlaut góðar viðtökur og vakti mikla athygli fyrir vönduð vinnubrögð og framsækna þjónustu. Hrós á okkar fólk fyrir góða vinnu.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
20. nóvember 2026
Á miðvikudaginn 18. nóvember fékk 8. bekkur heimsókn frá systrunum og fyrrverandi nemendum Grundaskóla, þeim Hörpu og Berglindi Þráinsdætrum. Þær sögðu nemendum frá fæðingargalla Hörpu, hvaða áhrif það hafði á líf þeirra í Grundaskóla á sínum tíma að vera öðruvísi og hvaða lærdóma mætti draga af þeirra reynslu. Heimsóknin var í tengslum við verkefnið Undur og stórmerki sem nú er unnið í 8. bekk, þar sem lesin er bókin Undur. Bókin fjallar um drenginn Ágúst sem fæddist með galla í andliti og er að byrja í nýjum skóla með tilheyrandi áskorunum. Nemendur okkar voru mjög forvitnir og voru einstaklega duglegir að spyrja þær systur, enda þeirra saga um margt svipuð þeirri sem við erum að lesa um í bókinni. Óhætt er að segja að nemendur hafi lært mikið af þessari heimsókn og þökkum við Hörpu og Berglindi kærlega fyrir að gefa sér tíma og ræða við nemendur.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
20. nóvember 2026
Verðlaunaafhending í keppninni Göngum í skólann fór fram í sal skólans í síðustu viku. Nemendur eru alltaf spenntir og auðvitað er gaman að sigra og fá afhentan Gullskóinn glæsilega fyrir góðan árangur. Það voru allir árgangar að sjálfsögðu með og kennari hvers bekks skráði niður ferðir nemenda sinna einn dag í hverri viku í 5 skipti. Niðurstöður keppninar voru á þá leið að 10. bekkurinn okkar var sigurvegarinn þetta árið. Það er gaman þegar elstu nemendur skólans eru góðar fyrirmyndir og eru þau vel að sigrinum kominn. Til hamingju 10.bekkur.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. nóvember 2026
Í tilefni af degi íslenskrar tungu unnu nemendur í 7. bekk skemmtilegt verkefni sem bar heitið Íslenskur blómagarður . Nemendur bjuggu hver til sitt eigið blóm með fimm blöðum og fylltu þau af íslenskum orðum sem höfðu sérstaka merkingu fyrir þau. Þau völdu meðal annars orð sem minntu þau á eitthvað fallegt, orð sem hljómuðu skemmtilega eða skringilega, gömul íslensk orð, uppáhaldsorðin þeirra og orð sem tengdust fjölskyldu, vináttu og náttúrunni á Íslandi. Einnig fengu nemendur tækifæri til að velta fyrir sér orðum sem þau höfðu nýlega lært, orðum sem lýstu líðan þeirra og orðum sem þau vildu gjarnan að fleiri þekktu. Úr varð fjölbreyttur og litríkur íslenskur blómagarður þar sem hvert blóm er einstakt og endurspeglar hugmyndir, upplifanir og orðaval hvers nemanda. Verkefnið var skemmtileg leið til að vekja athygli á fjölbreytileika íslenskunnar, velta fyrir sér töfrum tungumálsins og minna okkur á hversu dýrmætt það er að eiga fallegt og fjölbreytt móðurmál.



