Útivistarreglur breytast
Heiða Viðarsdóttir • 2. september 2025
 

Útivistartími barna breytist 1. september
Reglur um útivistartíma barna eru árstíðabundnar og taka breytingum 1. september og
1. maí ár hvert.
Á skólatíma, 1. september til 1. maí mega 12 ára börn og yngri lengst vera úti til kl. 20 en
1
3–16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 22. Aldur miðast við fæðingarár.
SAMAN-hópurinn hefur um árabil hvatt foreldra til að kynna sér reglur um útivistartíma barna og unglinga og virða hann. Útivistartíminn er ekki síst mikilvægur eftir að skóli hefst enda er nægur svefn ein lykilforsenda þess að börnum og unglingum farnist vel.

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 27. október 2025 
 
 Skólakór Grundaskóla kom fram á Þjóðahátíð sem haldin var síðastliðinn sunnudag í íþróttahúsinu á Vesturgötu við mikinn fögnuð áheyrenda.                                                                        Stjórnandi er Lilja Margrét Riedel.                                                                        Margrét Iðunn Benediktsdóttir lék á fiðlu.                                                            Tónleikarnir verða endurteknir seinna á önninni svo fleiri fái að njóta.
 

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 17. október 2025 
 
 Kæru foreldrar/forráðamenn                                                                             Næstkomandi mánudag 20. og þriðjudag 21. október er vetrarleyfi                                                              í Grundaskóla og fellur kennsla niður þessa tvo daga. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. október.                                                                             Samvera foreldra og barna er frábær forvörn og nú er einstakt tækifæri til að efla tengslin enn frekar. Það er alltaf hægt að njóta samverustunda með fjölskyldunni og hér má finna hugmyndir af margvíslegri afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra.                                                                             Við óskum fjölskyldum alls hins besta í vetrarleyfinu.                                                                             Kær kveðja,                       Starfsfólk Grundaskóla
 







