Skipulagsdagur 22.09.2025
Heiða Viðarsdóttir • 23. september 2025

Margt var um manninn í dag í Víkurskóla þegar sameiginlegur starfsdagur Grundaskóla, Stapaskóla og Víkurskóla var haldinn.

Fróðlegur og skemmtilegur skipulagsdagur í dag.
Þrír öflugir skólar leggja saman krafta sína í sprotastarfi.
Fyrsta skrefið af vonandi mörgum til að stuðla að framförum í námi og kennslu.
https://www.facebook.com/profile.php?id=100063441866965

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk














