Samfélagslöggur í heimsókn í 10. bekk

Heiða Viðarsdóttir • 27. janúar 2026

Löggurnar spiluðu fótbolta með krökkunum

Samfélagslöggur mættu í heimsókn í 10. bekk í dag.


Löggurnar spiluðu fótbolta og gryfjubolta með krökkunum. Samfélagslöggæsla er hugmyndafræði löggæslu sem leggur áherslu á að efla tengslin á milli lögreglu og íbúa.


Áherslan á Vesturlandi var að farsæld barna og ungmenna og hvernig megi betur styðja við þau. Einnig er verið að auka sýnileika og mynda tengsl og traust milli ungmenna og lögreglunnar. 

 

Það voru allir alsælir með daginn, nemendur, starfsfólk og löggur. Vonandi er þetta komið til að vera og verðandi 10.bekkingar fái tækifæri til að hitta löggurnar á jafn skemmtilegum viðburði og krakkarnir okkar fengu í dag. 

 

Hægt er að fylgjast með Samfélagslöggunni á 

instagram: samfelagsloggur_vesturlandi/

Eftir Heiða Viðarsdóttir 29. janúar 2026
Að mæla horn
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Nemendur uppgötva stærðfræðina meira sjálf
Eftir Heiða Viðarsdóttir 23. janúar 2026
5. bekkur endurvinnur kertaafganga
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. janúar 2026
Verkefni sem unnið var í 10. bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Starfsfólk Grundaskóla óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. Janúar. Jólakveðja Starfsfólk Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig.  Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 18. desember 2025
Rauður dagur í Grundaskóla, samsöngur og jólamatur.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 18. desember 2025
Lögreglan heimsótti 5. bekk
Eftir Heiða Viðarsdóttir 17. desember 2025
Unnið með gler í smiðjunni
Eftir Heiða Viðarsdóttir 15. desember 2025
Orkuveita Reykjavíkur bauð 6. bekk í heimsókn
Show More