Fjórir fjarkar

Í 9. og 10. bekk er verið að vinna eftir kennsluaðferðinni að skapa hugsandi skólastofu í stærðfræði. Ein af þrautunum sem lögð var fyrir nemendur var að þau fengu fjóra fjarka og verkefni þeirra var að setja einhverjar reikniaðgerðir á milli þannig þau fengju svör frá 1 og upp í 10.
4 4 4 4 = 1
4 4 4 4 = 2
4 4 4 4 = 3
o.s.frv.
Þessi þraut reyndi töluvert á nemendur og var því ákveðið að framlengja verkefnið fram á gang í keppni á milli nemenda. Í verkefninu sem hengt var fram á gang þurftu nemendur að finna svör frá 11-100. Einnig var auka blöðum bætt til hliðar þar sem nemendur gátu skráð ef þau hefðu aðrar lausnir en þær sem þegar voru uppkomnar.
Sigurvegari þessarar þrautar var Daði Rafn Reynisson í 9. bekk en hann kom með svör við hvorki meira né minna en 111 dæmum. Í öðru sæti var Tinna María Sindradóttir nemandi í 10. bekk. Vel gert krakkar.










