Gaman í stærðfræði í 5. bekk
Heiða Viðarsdóttir • 29. janúar 2026

Að mæla horn
Námsþátturinn þessa dagana í 5. bekk er rúmfræði og í dag vorum við að mæla horn.
Í kennslustundinni notuðu krakkarnir gráðuboga og mældu mismunandi form horna og í leiðinni læra þau að greina á milli hvassra, réttra og gleiðra horna.
Krakkarnir unnu bæði saman og sjálfstætt og sýndu mikinn áhuga á verkefnunum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk












