Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Vökudögum

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Vökudögum
Það verður sannkölluð menningarveisla á Vökudögum sem fram fara dagana 22. október til 1. nóvember. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla aldurshópa og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á meðal þess sem boðið verður upp á eru fjölbreyttar listasýningar víðs vegar um bæinn, tónleikar, kvikmyndasýningar og skemmtilegar smiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Við vekjum sérstaka athygli á fimm frístundatilboðum fyrir nemendur og foreldra tengt Opna skólanum.
Sjá: https://www.vokudagar.is/vidburdir/opni-skolinn-list--og-verkgreinar-grundaskoli
Vökudagar eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, upplifa menningu og listir og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum.
Heimasíða Vökudaga
Áhugafólk um hátíðina er hvatt til að kynna sér dagskrána á heimasíðu Vökudaga, www.vokudagar.is, þar sem finna má upplýsingar um þá fjölmörgu viðburði sem verða í boði.
Foreldrar og forráðamenn eru sérstaklega hvattir til að skoða dagskrána með börnum sínum og finna saman eitthvað skemmtilegt til að taka þátt í.
Einnig má fylgjast með fréttum og viðburðum á Facebook-síðu Vökudaga.
Takið dagana frá og njótið fjölbreyttrar menningar- og fjölskyldudagskrár á Vökudögum!









