Byggjum hugsandi skólastofu í stærðfræði

Heiða Viðarsdóttir • 27. janúar 2026

Nemendur uppgötva stærðfræðina meira sjálf

Í upphafi árs byrjaði 9. bekkur að vinna eftir hugmyndafræðinni að byggja hugsandi skólastofu í stærðfræði. Í þessari hugmyndafræði er verið að reyna að virkja nemendur til þess að hugsa og uppgötva stærðfræðina meira sjálf. Aðferðin byggir á því að nemendur vinna í hópum, aldrei fleiri en þrír og ekki færi en tveir. Hópar eru alltaf myndaðir af handahófi inn í stofunni.


Í þessari viku hafa foreldrar nemenda í 9. bekk fengið kynningu á þessari aðferð í anda Opna skólans.

Foreldrar koma í stærðfræðitíma þar sem þeir fá að upplifa sjálfir hvernig hlutirnir eru gerðir inn í kennslustofunni. Foreldrum er skipt af handahófi í hópa og síðan lagt fyrir þau stærðfræðiþraut sem þau síðan vinna við að leysa saman.

Þessar kynningar hafa heppnast afar vel. Foreldrar hafa verið spenntir og kannski smá stressuð til að byrja með en það hvarf um leið og þau byrjuðu að vinna saman og finna lausnir.


Þessar breytingar á kennsluháttum falla vel að áherslum um Opna skólann í Grundaskóla. Með því að bjóða foreldrum inn í skólann og gefa þeim tækifæri til að kynnast áherslum og starfháttum aukast líkur á að við vinnum betur saman við að styðja börnin okkar í náminu.


Þessir kynningartímar voru virkilega vel heppnaðir og eru kannski upphafið af öðru og meira.


Góðar umræður sköpuðust um stærðfræðikennsluna og lifandi og skemmtileg skoðanaskipti áttu sér stað um hvernig við gerum góðan skóla betri. 


Eftir Heiða Viðarsdóttir 18. mars 2026
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 16. mars 2026
Í aðalvali er meðal annars boðið upp á leirnámskeið. Hluti af námskeiðinu var að fá að prufa að renna leir á rennibekk, sem marga dreymir um að fá að reyna sig við. Anna Leif kennari fékk Íris Jönu, dóttur sína, til liðs við sig, tvo laugardaga í röð undir merkjum Opna skólans. Saman leyfðu þær nemendum að spreyta sig við þetta handverk. Áhugi og einbeitng sjást vel á meðfylgjandi myndum.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 13. mars 2026
Nemendur í 2. bekk unnu á dögunum vinaverkefni þvert á árgang eða með bekkjarfélugum. 2-3 nemendur unnu saman, teiknuðu mynd af sér og skrifuðu vinasögu. Skemmtileg vinna sem reyndi á samvinnu, skipulagningu, hjálpsemi, þolinmæði og hugmyndaflug. Nemendur þurftu að koma sér saman um hverning myndin ætti að vera og semja söguna saman. Sumir eru góðir í að semja sögu, aðrir eru góðir í að skrifa en öll getum við eitthvað og með því að vinna saman getum við lært hvert af öðru. Saman erum við sterkari. 😊
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 13. mars 2026
Nemendur í Procreate teiknivali hanna vörumerki.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 12. mars 2026
Vilt þú vera með?
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 12. mars 2026
Umboðsmaður barna sendir bæjarstjórn Akraneskaupstaðar formlegt bréf eftir ánægjulega vettvangsheimsókn á Akranes. Efni: Öryggi nemenda og sundkennsla. Sjá nánar í meðfylgjandi hlekk: Vettvangsheimsókn umboðsmanns barna á Akranes.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 5. mars 2026
Fimmtudaginn 5. mars fengum við í 3. bekk Grundaskóla góða gesti í heimsókn þegar nemendur í 3. bekk í Brekkubæjarskóla komu til okkar. Við áttum saman skemmtilegan dag bæði inni og úti.  Alltaf gaman að efla tengslin á milli skólana. Takk fyrir komuna
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 4. mars 2026
Zentangle - Fyrir foreldra og börn frá 5. - 10.bekk.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 3. mars 2026
Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom í heimsókn í Grundaskóla mánudaginn 2. mars ásamt fylgdarliði og fundaði með fulltrúum í nemendaráði skólans. Á fundinum var farið yfir ýmis hagsmunamál barna og rætt um margvísleg mál er varða nemendur skólans. Meðal annars var farið ítarlega yfir aðstöðumál í sundlauginni á Jaðarsbökkum. Fundurinn var mjög vel heppnaður og í lok dagskrár fengu gestirnir kynningu á skólanum og þeirri þjónustu sem hér er veitt.  Við þökkum fyrir ánægjulega heimasókn og góðar samræður.
Show More