🎭 Hugmyndavinna fyrir nýjan söngleik 2027-2028

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 16. október 2026

… nú hefst ævintýrið!


Við auglýsum eftir hugmyndum fyrir uppsetningu á frumsömdum nýjum söngleik sem fyrirhugað er að setja upp skólaárið 2027-2028 í Grundaskóla.


Við leggjum af stað með tvær hendur tómar, en vonandi fullt af hugmyndum í farteskinu. Ekkert handrit, engin lög og engin fyrir fram ákveðin saga – bara opinn hugur, sköpunarkraftur og ótal möguleikar.


Hvernig söngleik langar okkur að skapa? Hvaða sögu viljum við segja? Hvaða persónur, tónlist, húmor og ævintýri gætu orðið hluti af sýningunni?


Við erum rétt að hefja ferðalagið og viljum fá sem flesta með okkur.

Öll stór ævintýri byrja á lítilli hugmynd.


🎶  Tökum fyrsta skrefið saman – sköpum nýjan söngleik í Grundaskóla! 🎶



🎭 Engin saga - Engin lög - Engin takmörk. Enn sem komið er!

 

Við ætlum að:


  • Safna hugmyndum frá nemendum, starfsfólki og öllu skólasamfélaginu.


  • Kalla saman öflugt og skapandi teymi sem hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu.


  • Skoða hugmyndirnar, velta upp möguleikum og finna sameiginlega stefnu.


  • Leggja grunn að nýjum, frumsömdum söngleik sem verður til í skapandi samstarfi í skólanum okkar.


Eftir Heiða Viðarsdóttir • 16. október 2026
Mikið hefur borið á því að nemendur okkar sjáist illa í myrkrinu og framundan eru myrkustu mánuðir ársins. Til að forðast slys viljum við að allir taki umræðuna með börnum sínum um mikilvægi endurskinsmerkja og tryggja að þau séu notuð. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun þeirra skilið milli lífs og dauða.  Einnig viljum við ítreka beiðni um að nota ávallt gangbraut þegar farið er yfir akbraut. Sýnum öll aðgát í umferðinni - Við viljum öll koma heil heim.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 16. október 2026
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Vökudögum Það verður sannkölluð menningarveisla á Vökudögum sem fram fara dagana 22. október til 1. nóvember. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla aldurshópa og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á meðal þess sem boðið verður upp á eru fjölbreyttar listasýningar víðs vegar um bæinn, tónleikar, kvikmyndasýningar og skemmtilegar smiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Við vekjum sérstaka athygli á fimm frístundatilboðum fyrir nemendur og foreldra tengt Opna skólanum. Sjá: https://www.vokudagar.is/vidburdir/opni-skolinn-list--og-verkgreinar-grundaskoli Vökudagar eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, upplifa menningu og listir og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum. Heimasíða Vökudaga Áhugafólk um hátíðina er hvatt til að kynna sér dagskrána á heimasíðu Vökudaga, www.vokudagar.is , þar sem finna má upplýsingar um þá fjölmörgu viðburði sem verða í boði. Foreldrar og forráðamenn eru sérstaklega hvattir til að skoða dagskrána með börnum sínum og finna saman eitthvað skemmtilegt til að taka þátt í. Einnig má fylgjast með fréttum og viðburðum á Facebook-síðu Vökudaga .  Takið dagana frá og njótið fjölbreyttrar menningar- og fjölskyldudagskrár á Vökudögum!
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 14. október 2026
Uppsetning á söngleik er samvinnuverkefni skólasamfélags og í Grundaskóla iðar allt af lífi langt fram á nótt og allir glaðir. Hér erum við að ræða um Opinn skóla 😊
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 14. október 2026
Nú eru Förustafirnir farnir að stækka það mikið að óhætt er að taka þá úr búrinu. Þeir vekja mikla lukku hjá mörgum nemendum sem vilja ólmir taka þá til sín og leyfa þeim að vera með sér á meðan þeir eru í kennslustund.  Förustafirnir eru farnir að fá hin ýmsu nöfn á meðan þeir eru að læra með nemendum. Það er gaman að fylgjast með áhuga nemenda á þessu saklausu dýrum í náttúrfræðistofunni.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna.  Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Á níunda hundrað manns, nemendur Grundaskóla, starfsfólk og gestir komu í dag og dönsuðu saman í tilefni 45 ára afmælis skólans.  Hér ríkir bæði gleði og samstaða. 😍 😍 😍
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Kvöld og um helgar vinna foreldrar í samvinnu við börn sín og starfsfólk skólans að uppsetningu á söngleiknum Frelsi. Takk fyrir samvinnuna gott fólk - Við erum sterk liðsheild í Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. október 2026
Til hamingju með daginn - Grundaskóli 45 ára.  Í dag fagnar Grundaskóli 45 ára afmæli, en skólinn tók fyrst til starfa þann 6. október 1981.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. október 2026
Nemendur 3. bekkjar bjuggu til þessar fallegu afmælisblöðrur og óska Grundaskóla til hamingju með 45 ára afmælið með þessum fallegu orðum.  Bestu kveðjur 3. bekkur
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember.  Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.
Show More