Öryggi í forgangi – 9. bekkur stendur vaktina
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 16. september 2025
 

Það voru morgunhressir 9. bekkingar sem mættu galvaskir í gangbrautavörslu í morgun. Það er árgangur 2011 sem tekur nú við keflinu og sinnir þessu mikilvæga starfi í vetur.
Skólinn er stoltur af nemendum sínum sem taka hlutverkið alvarlega og sýna að ungt fólk getur haft raunveruleg og jákvæð áhrif á samfélagið sitt – jafnvel áður en það hefur lokið grunnskóla.
Við hlökkum til að fylgjast með þeim vaxa í hlutverkinu og vera fyrirmyndir fyrir yngri nemendur.

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 27. október 2025 
 
 Skólakór Grundaskóla kom fram á Þjóðahátíð sem haldin var síðastliðinn sunnudag í íþróttahúsinu á Vesturgötu við mikinn fögnuð áheyrenda.                                                                        Stjórnandi er Lilja Margrét Riedel.                                                                        Margrét Iðunn Benediktsdóttir lék á fiðlu.                                                            Tónleikarnir verða endurteknir seinna á önninni svo fleiri fái að njóta.
 

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 17. október 2025 
 
 Kæru foreldrar/forráðamenn                                                                             Næstkomandi mánudag 20. og þriðjudag 21. október er vetrarleyfi                                                              í Grundaskóla og fellur kennsla niður þessa tvo daga. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. október.                                                                             Samvera foreldra og barna er frábær forvörn og nú er einstakt tækifæri til að efla tengslin enn frekar. Það er alltaf hægt að njóta samverustunda með fjölskyldunni og hér má finna hugmyndir af margvíslegri afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra.                                                                             Við óskum fjölskyldum alls hins besta í vetrarleyfinu.                                                                             Kær kveðja,                       Starfsfólk Grundaskóla
 









