Námskeiðabraut - Aðalval Haust 2026

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 28. ágúst 2026

Í unglingadeild Grundaskóla er námskeiðabraut - Aðalval, fyrir 8.-9.bekk

Það er á miðvikudögum og föstudögum.


Nemendur fá kynningar og tækifæri til að velja sér af eftirfarandi auglýsingum þetta haustið fyrir þessar tvær lotur sem eru fyrir jól.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Hið árlega skólahlaup var haldið í blíðskaparveðri í dag. Mikil og góð þátttaka var í hlaupinu og var gaman að sjá foreldra og ömmur taka þátt ásamt nemendum og starfsmönnum.  Þetta er skemmtileg hefð og skapast alltaf mikil og góð stemning á þessum degi.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Nú liggur fyrir ákvörðun um kjörstað hér á Akranesi, hann verður í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 9-22. Með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan má finna upplýsingar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar. Gagnlegar upplýsingar
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Nemendur 3.bekkjar hjálpuðust að við tína Rifsber sem þau ætla að sulta og selja á markaðinum Breytum krónum í gull. Mikil samvinna hjá þessum flottu krökkum.  Bestu kveðju, teymið í 3.bekk
Eftir Heiða Viðarsdóttir 26. ágúst 2026
Það var líf og fjör þegar krakkarnir fóru í fyrstu frímínúturnar á þessu skólaári í Unglingadeild í morgun.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. ágúst 2026
Skólasetning Grundaskóla 25.ágúst
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. júní 2026
Fundur í sal Grundaskóla 24. ágúst nk.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 10. júní 2026
Í gær fór fram útskriftarathöfn í Grundaskóla þar sem árgangur 2010 lauk sinni grunnskólagöngu. Alls voru 78 nemendur sem tóku á móti lokavitnisburði frá skólanum á þessum viðburði. Við óskum útskriftarnemum til hamingju með góðan námsárangur og þökkum foreldrum þeirra einnig fyrir gott samstarf s.l. tíu ár. Megi gæfan fylgja ykkur um alla tíð.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 8. júní 2026
Kvikmyndahátíð Grundaskóla, sem fram fór dagana 1. til 8. júní, tókst vonum framar. Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt og metnaðarfull og ríkti mikil ánægja með hvernig til tókst. Allir dagskráliðir gengu ótrúlega vel og sýndu nemendur einstakan áhuga og sköpunargleði. Hátíðin hófst mánudaginn 1. júní með afar líflegu spjalli við Jóel Þór Jóhannesson. Jóel ræddi við nemendur í 8.–10. bekk um gerð myndefnis fyrir samfélagsmiðla og mikilvægi samfélagsmiðlaöryggis. Umræðurnar voru bæði gagnlegar og skemmtilegar, og voru nemendur duglegir við að koma með góðar spurningar. Miðvikudaginn 3. júní hélt dagskráin áfram í Bíóhöllinni með viðburðinum UngRIFF x Dýnamík sviðslistaskóli, þar sem myndirnar Tólf og Heimavist voru sýndar, og fengu nemendur tækifæri til að ræða beint við leikstjóra í kjölfarið. Fimmtudaginn 4. júní var boðið upp á pallborðsumræður í samstarfi við Kvikmyndaskólann. Þar mættu þeir Gunnar Björn og Þorsteinn Bachmann og spjölluðu við 8.–10. bekk. Nemendur Grundaskóla sýndu mikla virkni og nýttu tækifærið vel til að fræðast um heim kvikmyndagerðar. Frábært hátíðarkvöld Hápunktur hátíðarinnar var án efa sýningarnar, þar sem afrakstur nemenda var sýndur á stóra skjánum. Sýningarnar voru hreint út sagt frábærar og mætingin góð, sérstaklega á fyrri sýninguna hjá 4.–7. bekk. Nemendafélagið hélt uppi stemningunni með sjoppu og kvikmyndakahooti, þar sem keppt var um flottan vinning. Vegna þess hve vel tókst til er það klárt mál að við munum halda áfram að bjóða yngri nemendum skólans að taka þátt í hátíðinni. Hátíðinni lauk svo með 24 Hour Challenge dagana 5. og 8. júní, þar sem nemendur úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla (FÁ) komu í heimsókn á vordögum og stýrðu verkefni þar sem nemendur spreyttu sig á því að búa til stuttmynd á aðeins sólarhring. Úrslit og verðlaunahafar Dómnefnd átti siður en svo auðvelt verk fyrir höndum, en eftirfarandi verk og nemendur hlutu opinbera viðurkenningu og verðlaun á hátíðinni í ár: Yngri nemendur: Besta handritið: Sumarbústaðaruglið Besta klippingin: Innbrotið í skólann Frumlegasta hugmyndin: Fréttatíminn Unglingadeild: Besta myndin, besta handritið og besta kvikmyndatakan: Framboð Frostasonar Besta klippingin: Skuld Besti leikur í aðalhlutverki: Róbert Kári Örnólfsson Besti leikur í aukahlutverki: Albert Hrafn Lúðvíksson Í dómnefnd hjá okkur í ár voru þau Lilja Margrét Riedel og Kristján Alexander Reiners hjá 4.-7.bekk og hjá 8.-10.bekk voru þau Heiðar Mar Björnsson, Lára Magnúsdóttir og Salvör Bergmann. Salvör var fulltrúi RIFF í dómnefnd. Við þökkum þeim kærlega fyrir að taka þetta verkefni að sér. Innilegar þakkir Kvikmyndahátíð Grundaskóla vill að lokum færa innilegar þakkir til samstarfsaðila okkar sem gerðu þennan viðburð mögulegan: Kvikmyndaskólinn , RIFF og Fjölbrautarskólinn við Ármúla .  Einnig fá styrktaraðilar hátíðarinnar okkar bestu þakkir fyrir að styðja við bakið á ungu kvikmyndagerðarfólki með glæsilegum verðlaunum. Við stefnum ótrauð á að gera hátíðina enn stærri og flottari að ári!
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 8. júní 2026
Hér koma tímasetningar fyrir skólaslitin þann 10. júní nk. VIð byrjum saman inni á sal og síðan fara nemendur í stofurnar sínar og ljúka skólaárinu saman. 1. - 3. bekkur kl. 9:00 4. - 5. bekkur kl. 9:30 6. - 7. bekkur kl. 10:00 8. - 10. bekkur kl. 10:30 Við í Grundaskóla þökkum fyrir gott samstarf í vetur. Hafið það gott í sumarfríinu. Sumarkveðja, Starfsfólk Grundaskóla
Eftir Heiða Viðarsdóttir 4. júní 2026
Grundaskóli vann hjólað í vinnuna með glæsibrag
Show More