Kjörstaður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður í Grundaskóla

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 28. ágúst 2026

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).


Nú liggur fyrir ákvörðun um kjörstað hér á Akranesi, hann verður í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 9-22.


Með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan má finna upplýsingar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar.


Gagnlegar upplýsingar


Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 26. nóvember 2026
Nemendur í 1.–7. bekk fengu afhent endurskinsmerki frá ÍA (íþróttabandalaginum) og geta því nú látið sjá sig enn betur í umferðinni.  Hér má sjá hressa nemendur í 7. bekk með flottu ÍA-endurskinsmerkin sín. Við þökkum ÍA kærlega fyrir framtakið og mikilvæga áminningu um öryggi í umferðinni
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 26. nóvember 2026
Nemendur í 2. bekk sem æfa á víólur og fiðlur spiluðu fyrir árganginn sinn. Þau buðu krökkunum fram á sameiginlega svæðið okkar þar sem þau létu ljós sitt skína ásamt kennara sínum úr tónlistarskólanum. Þetta var virkilega góð og skemmtileg stund.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. nóvember 2026
Nemendur í 9. bekk hafa verið að læra um meltingarkerfi mannsins. Í vikunni gerðu þau skemmtilega tilraun til að sjá hvernig líkaminn brýtur niður fitu.  Í tilrauninni notuðu nemendur nýmjólk, matarlit og uppþvottalög. Sápan átti að líkja eftir galli í líkamanum, en hlutverk galls er að brjóta niður fitu í matnum svo auðveldara sé að melta hana.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 24. nóvember 2026
Nemendur í 8. bekk hafa verið að gera spennandi tilraun í náttúrufræði. Þau einangruðu erfðaefni (DNA) úr jarðarberjum.  Verkefnið var unnið í tengslum við lestur á bókinni Undur, þar sem erfðir koma við sögu, og gaf nemendum tækifæri til að sjá sjálft erfðaefnið með berum augum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 23. nóvember 2026
Um ólögleg frammistöðubætandi efni
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 23. nóvember 2026
Grundaskóli átti glæsilega fulltrúa á farsældarþinginu og þrír þeirra fluttu fyrirlestra um starfsemi í skólanum og þá verkþætti sem eru við líði hér. Fyrirlesarar voru þau Ingibjörg Stefáns, Christel og Hilmar Halldórss. Erindi þeirra hlaut góðar viðtökur og vakti mikla athygli fyrir vönduð vinnubrögð og framsækna þjónustu.  Hrós á okkar fólk fyrir góða vinnu.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 20. nóvember 2026
Á miðvikudaginn 18. nóvember fékk 8. bekkur heimsókn frá systrunum og fyrrverandi nemendum Grundaskóla, þeim Hörpu og Berglindi Þráinsdætrum. Þær sögðu nemendum frá fæðingargalla Hörpu, hvaða áhrif það hafði á líf þeirra í Grundaskóla á sínum tíma að vera öðruvísi og hvaða lærdóma mætti draga af þeirra reynslu. Heimsóknin var í tengslum við verkefnið Undur og stórmerki sem nú er unnið í 8. bekk, þar sem lesin er bókin Undur. Bókin fjallar um drenginn Ágúst sem fæddist með galla í andliti og er að byrja í nýjum skóla með tilheyrandi áskorunum. Nemendur okkar voru mjög forvitnir og voru einstaklega duglegir að spyrja þær systur, enda þeirra saga um margt svipuð þeirri sem við erum að lesa um í bókinni.  Óhætt er að segja að nemendur hafi lært mikið af þessari heimsókn og þökkum við Hörpu og Berglindi kærlega fyrir að gefa sér tíma og ræða við nemendur.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 20. nóvember 2026
Verðlaunaafhending í keppninni Göngum í skólann fór fram í sal skólans í síðustu viku. Nemendur eru alltaf spenntir og auðvitað er gaman að sigra og fá afhentan Gullskóinn glæsilega fyrir góðan árangur. Það voru allir árgangar að sjálfsögðu með og kennari hvers bekks skráði niður ferðir nemenda sinna einn dag í hverri viku í 5 skipti. Niðurstöður keppninar voru á þá leið að 10. bekkurinn okkar var sigurvegarinn þetta árið. Það er gaman þegar elstu nemendur skólans eru góðar fyrirmyndir og eru þau vel að sigrinum kominn. Til hamingju 10.bekkur.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 19. nóvember 2026
Í tilefni af degi íslenskrar tungu unnu nemendur í 7. bekk skemmtilegt verkefni sem bar heitið Íslenskur blómagarður . Nemendur bjuggu hver til sitt eigið blóm með fimm blöðum og fylltu þau af íslenskum orðum sem höfðu sérstaka merkingu fyrir þau. Þau völdu meðal annars orð sem minntu þau á eitthvað fallegt, orð sem hljómuðu skemmtilega eða skringilega, gömul íslensk orð, uppáhaldsorðin þeirra og orð sem tengdust fjölskyldu, vináttu og náttúrunni á Íslandi. Einnig fengu nemendur tækifæri til að velta fyrir sér orðum sem þau höfðu nýlega lært, orðum sem lýstu líðan þeirra og orðum sem þau vildu gjarnan að fleiri þekktu. Úr varð fjölbreyttur og litríkur íslenskur blómagarður þar sem hvert blóm er einstakt og endurspeglar hugmyndir, upplifanir og orðaval hvers nemanda.  Verkefnið var skemmtileg leið til að vekja athygli á fjölbreytileika íslenskunnar, velta fyrir sér töfrum tungumálsins og minna okkur á hversu dýrmætt það er að eiga fallegt og fjölbreytt móðurmál.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 19. nóvember 2026
Nú er lestrarkeppninni lokið og er óhætt að segja að nemendur hafi staðið sig með mikilli prýði. Að keppni lokinni fékk sá árgangur sem las mest og þeir nemendur sem lásu mest í sínum árgangi viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Nemendur fengu verðlaunaskjal og gjafabréf. Það var 4. bekkur sem bar sigur úr býtum í keppni árganganna en nemendur þar lásu samtals 102.580 orð . Glæsilegur árangur. Eftirtaldir nemendur lásu mest í sínum árgangi: 1. bekkur: Aðalheiður Björk 2. bekkur: Salvör Tinna 3. bekkur: Emilía Rós 4. bekkur: Sylva Sól og Móey 5. bekkur: Rúrik Logi 6. bekkur: Sara Dís 7. bekkur: Þorri Kristján Við óskum öllum nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim fyrir góða þátttöku. Þótt nemendur hafi almennt staðið sig mjög vel er alltaf hægt að gera enn betur og því stefnum við á að hefja nýja lestrarkeppni í febrúar. Við hlökkum til að sjá hversu mörg orð verða lesin þá.  Verðlaunaafhendingin fór fram á degi íslenskrar tungu. Af því tilefni komu nemendur úr 10. bekk og sungu með nemendum í 1. - 7. bekk vináttusönginn okkar.
Show More