Vorrúllur frá grunni í Heimilisfræði
Heiða Viðarsdóttir • 2. febrúar 2026

Nemendur í 10. bekk lærðu að útbúa vorrúllur frá grunni

Nemendurnir lærðu að undirbúa fyllingu, rúlla vorrúllunum upp og djúpsteikja þær á öruggan hátt.
Auk þess var útbúið meðlæti sem passaði vel með réttinum. Þó voru sum þeirra aðeins viðkvæm fyrir lyktinni sem myndaðist við matargerðina.
Verkefnið þótti engu að síður bæði lærdómsríkt og skemmtilegt og ríkti góð stemning í kennslustundinni.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk














