Alþjóðadagur kennara – 5. október 2026

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 5. október 2026

Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu.


Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi.


Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi.


Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994.



Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.

Eftir Heiða Viðarsdóttir • 5. október 2026
Formenn Nemendafélagsins færðu Alexander Helga gjöf
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Í vikunni fengum við góða gesti frá Tékklandi í heimsókn í Grundaskóla. Um er að ræða starfshóp sem vinnur að menntastefnu landsins til ársins 2030. Gestirnir fengu kynningu á starfsemi og áherslum Grundaskóla, skoðuðu skólann og ræddu við bæði nemendur og starfsfólk. Heimsókninni lauk með samráðsfundi þar sem gestunum gafst tækifæri til að spyrja nánar út í skipulag skólastarfsins, kennsluhætti og þær áherslur sem einkenna starf skólans. Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við barna- og menntamálaráðuneytið. Gestirnir lýstu mikilli ánægju með heimsóknina og voru sérstaklega hrifnir af aðstæðum, umhverfi og því starfi sem fram fer í Grundaskóla.  Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla af reynslu okkar, eiga samtal um skólaþróun og kynnast um leið áherslum og reynslu fólks sem starfar að menntamálum í öðrum löndum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Þegar skemmtileg stærðfræðiþraut bíður nemanda í unglingadeild eru nemendur mættir fyrir allar aldir til að reyna að leysa hana 😃
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun.  Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Næsta tímasetning er miðvikudagurinn 7. okt. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann (2000 kr. á par) og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Börnin eru misjöfn og ekki dugar öllum að fá einungis ávexti og grænmeti í morgunhressingu
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 29. september 2026
Áfall varð að tækifæri 
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 29. september 2026
Frístund Grundaskóla hefur flutt starfsemi sína á ný yfir í Grundasel og verður þar til að annað er ákveðið. Miklar framkvæmdir voru fyrirhugaðar á Grundaseli og því starfsemin flutt tímabundið inn í aðalbyggingu Grundaskóla. Þessum framkvæmdum hefur nú verið frestað um óákveðin tíma. Fyrstu vikurnar hafa verið flóknar því hátt í 150 nemendur og starfsmenn koma saman í frístund skólans og aðstæður í aðalbyggingunni réðu illa við það samhliða hefðbundinni skólastarfsemi.  Frístund er því komin aftur heim á Grundasel og fer miklu betur um alla aðila, bæði yngri og þá sem eldri eru.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 28. september 2026
Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni. Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Nemendur í unglingadeild voru duglegir í heimilisfræðinni og útbjuggu tortillupönnukökur alveg frá grunni ásamt fjölbreyttu meðlæti. Þau fengu tækifæri til að vinna sjálfstætt, prófa sig áfram og sjá hvernig einföld hráefni verða að góðri máltíð. Markmiðið var að nemendur læri að gera sjálfir og vita hvað er í matnum sem þau borða . Með því að útbúa matinn frá grunni fá þau betri innsýn í hráefnin, matreiðsluna og mikilvægi þess að geta bjargað sér í eldhúsinu.  Nemendur ganga vel um eldhúsið, halda vinnusvæðinu hreinu og leggja metnað í að ganga frá eftir sig. Það skilar sér í notalegu og góðu vinnuumhverfi þar sem allir geta notið sín.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026 fór fram í flestum skólum landsins á síðustu dögum og tóku þúsundir nemenda og starfsmanna skólakerfisins sprettinn í nafni heilsueflingar.  Nemendur Grundaskóla hlutu á dögunum viðurkenningu ÍSÍ fyrir að hlaupa samtals 3302 km.
Show More