Erlendir gestir í heimsókn

Í vikunni fengum við góða gesti frá Tékklandi í heimsókn í Grundaskóla.
Um er að ræða starfshóp sem vinnur að menntastefnu landsins til ársins 2030.
Gestirnir fengu kynningu á starfsemi og áherslum Grundaskóla, skoðuðu skólann og ræddu við bæði nemendur og starfsfólk.
Heimsókninni lauk með samráðsfundi þar sem gestunum gafst tækifæri til að spyrja nánar út í skipulag skólastarfsins, kennsluhætti og þær áherslur sem einkenna starf skólans.
Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við barna- og menntamálaráðuneytið. Gestirnir lýstu mikilli ánægju með heimsóknina og voru sérstaklega hrifnir af aðstæðum, umhverfi og því starfi sem fram fer í Grundaskóla.
Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla af reynslu okkar, eiga samtal um skólaþróun og kynnast um leið áherslum og reynslu fólks sem starfar að menntamálum í öðrum löndum.












