Viðurkenning í Fernuflugi
Heiða Viðarsdóttir • 4. desember 2025

Tveir drengir í 10. bekk fengu verk sín birt á mjólkurfernum
Tveir drengir í 10. bekk Grundaskóla hafa hlotið þann heiður að fá verk sín birt á mjólkurfernum í svokölluðu Fernuflugi á vegum Mjólkursamsölunnar fyrir árið 2026.
Þetta eru þeir Andri Snorrason og Birgir Viktor Kristinsson sem skrifuðu texta undir yfirskriftinni „Hvað er að vera ég?“
Alls bárust rúmlega 1200 textar í keppnina frá nemendum í 8.- 10. bekk af öllu landinu.
Þeir Andri og Birgir Viktor ásamt 46 öðrum ungmennum á Íslandi eiga tvo af þeim framúrskarandi textum sem hafa verið valdir til birtingar.
Óskum þeim til innilega til hamingju 😊

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk











