Vítahringur í 7. bekk
Heiða Viðarsdóttir • 10. október 2025

Skemmtileg bók um hinn 12. ára gamla Grímkel
Í 7. bekk hefur verið hefð fyrir því að lesa bókina Vítahringur, sem er að hluta til byggð á Harðar sögu.
Skemmtileg bók um hinn 12 ára gamla Grímkel Harðarson sem leiðir okkur í gegnum ævintýri í Hvalfirði.
Nú erum við að hefja 8 vikna lestrar- og verkefnaferðalag þar sem við lesum bókina saman og vinnum skemmtileg og fjölbreytt verkefni tengd sögunni.
Fyrsta vikan er liðin og hér má sjá myndir af nemendum af miklum áhuga og metnaði í vinnu.
Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldinu og sjá hvernig verkefnin þróast næstu vikurnar

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk

















