Vetrarleyfi Grundaskóla
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 17. október 2025


Kæru foreldrar/forráðamenn
Næstkomandi mánudag 20. og þriðjudag 21. október er vetrarleyfi í Grundaskóla og fellur kennsla niður þessa tvo daga. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. október.
Samvera foreldra og barna er frábær forvörn og nú er einstakt tækifæri til að efla tengslin enn frekar. Það er alltaf hægt að njóta samverustunda með fjölskyldunni og hér má finna hugmyndir af margvíslegri afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra.
Við óskum fjölskyldum alls hins besta í vetrarleyfinu.
Kær kveðja,
Starfsfólk Grundaskóla

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
16. mars 2026
Í aðalvali er meðal annars boðið upp á leirnámskeið. Hluti af námskeiðinu var að fá að prufa að renna leir á rennibekk, sem marga dreymir um að fá að reyna sig við. Anna Leif kennari fékk Íris Jönu, dóttur sína, til liðs við sig, tvo laugardaga í röð undir merkjum Opna skólans. Saman leyfðu þær nemendum að spreyta sig við þetta handverk. Áhugi og einbeitng sjást vel á meðfylgjandi myndum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
13. mars 2026
Nemendur í 2. bekk unnu á dögunum vinaverkefni þvert á árgang eða með bekkjarfélugum. 2-3 nemendur unnu saman, teiknuðu mynd af sér og skrifuðu vinasögu. Skemmtileg vinna sem reyndi á samvinnu, skipulagningu, hjálpsemi, þolinmæði og hugmyndaflug. Nemendur þurftu að koma sér saman um hverning myndin ætti að vera og semja söguna saman. Sumir eru góðir í að semja sögu, aðrir eru góðir í að skrifa en öll getum við eitthvað og með því að vinna saman getum við lært hvert af öðru. Saman erum við sterkari. 😊

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
3. mars 2026
Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom í heimsókn í Grundaskóla mánudaginn 2. mars ásamt fylgdarliði og fundaði með fulltrúum í nemendaráði skólans. Á fundinum var farið yfir ýmis hagsmunamál barna og rætt um margvísleg mál er varða nemendur skólans. Meðal annars var farið ítarlega yfir aðstöðumál í sundlauginni á Jaðarsbökkum. Fundurinn var mjög vel heppnaður og í lok dagskrár fengu gestirnir kynningu á skólanum og þeirri þjónustu sem hér er veitt. Við þökkum fyrir ánægjulega heimasókn og góðar samræður.




