Útskrift og skólaslit 2025
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 28. maí 2025

Útskrift og skólaslit 2025
Útskrift 10.Bekkjar 2025
Er 5.júní klukkan 16:00 á sal skólans.
Skólaslit Föstudaginn 6.júní 2025
Nemendur mæta á sal skólans og að því loknu fara þeir í bekkjarstofurnar sínar
1.- 3. bekkur Klukkan 9:00
4.- 5. bekkur Klukkan 9:30
6.- 7. bekkur Klukkan 10:00
8.- 10. bekkur Klukkan 10:30.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
29. ágúst 2025
Nemendur 10. bekkjar fengu heimsókn í vikunni þegar rithöfundurinn og fyrirlesarinn Þorgrímur Þráinsson kom og flutti fyrir þau fyrirlesturinn Verum ástfangin af lífinu. Þorgrímur náði vel til krakkanna sem hlustuðu af athygli allann tímann. Í fyrirlestrinum fjallaði Þorgrímur um þau mikilvægu skilaboð að við uppskerum eins og við sáum. Hann ræddi við nemendur um fjölmörg mikilvæg málefni sem snerta ungt fólk, þar á meðal samskipti við vini og fjölskyldu, mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi og þá töfra sem felast í því að setja sér markmið. Sérstaka áherslu lagði Þorgrímur á leiðir til að rækta hæfileika sína og takast á við kvíða, sem margir unglingar glíma við. Hann deildi dýrmætum ráðum um hvernig hver og einn getur orðið betri manneskja og náð lengra í lífinu með réttri hugarfarsbreytingu Hver og einn taki ábyrgð á eigin hamingju og velgengni, enginn fái allt upp í hendurnar. Við þökkum Þorgrími kærlega fyrir heimsóknina og vonum að hún hafi haft jákvæð áhrif á nemendur.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
29. ágúst 2025
Nemendur í 8. -10. bekk fengu kynningu á námskeiðum sem boðið verður upp á í vali þessa önnina. Nemendur fengu tækifæri til að ræða við kennara um námskeiðin og var gaman að fylgjast með áhuga þeirra. Það eru mörg spennandi námskeið í boði en þið getið kynnt ykkur framboðið hér á heimasíðunni.