Rökræður í 7. Bekk

Nemendur í 7. bekk tóku tíma í rökræðum í vikunni þar sem efnið til rökræðu var símabann í skólum og skólabúningar í grunnskólum. Áður en það var byrjað, var farið vel yfir það hvernig rökræður færu fram, að það mætti ekki grípa fram í fyrir hinum og muninn á því að rökræða og að rífast.
Árgangurinn skipti sér í tvo hópa og drógu svo hvort þau væri með eða á móti. Hóparnir fengu 10 mínútur til að skrifa niður rökin sín áður en fulltrúar úr hópnum stóðu svo fyrir framan dómara og fluttu rökin sín fyrir hönd hópsins. Dómari varð svo að dæma út frá því hvor hópurinn væri með betri rök og hvort þau gætu svarað rökum hins hópsins á málfarslegan og góðan hátt.
Þetta var skemmtilegt verkefni sem er gaman að fara í með málglöðum og ákveðnum krökkum!
Hér fylgja nokkrar myndir úr tímanum:











