Lokahátíð upplestrarkeppninnar á Akranesi.

Miðvikudaginn 18. mars fór fram lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi við hátíðlega athöfn í Tónbergi. Þar sýndu tólf öflugir fulltrúar úr 7. bekk Grundaskóla og Brekkubæjarskóla færni sína í vönduðum upplestri og skýrri framsögn. Undirbúningur nemenda hófst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn, og hafa nemendur lagt mikið á sig síðan þá við að æfa framburð og túlkun. Eftir útsláttarkeppnir innan skólanna stóðu tólf nemendur eftir sem kepptu til úrslita, sex frá hvorum skóla.
Hátíðin hófst á því að Aldís Ylva Heimisdóttir flutti ávarp og auk þess voru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sem prýddu boðskort keppninnar í ár. Dómarar kvöldsins lýstu því yfir að keppnin hefði verið mjög hörð og ljóst að nemendur hefðu lagt mikla vinnu í sína frammistöðu. Allir þátttakendur stóðu sig með stakri prýði og voru skólum sínum til mikils sóma. Eftir vandasama ákvörðun dómnefndar voru sigurvegarar kvöldsins kynntir, en það voru þau Laufey Svanbergsdóttir úr Grundaskóla og Gunnar Kristian Arnarson Wessman úr Brekkubæjarskóla sem hlutskörpust urðu.
Við í Grundaskóla erum afar stolt af okkar fulltrúum og öllum þeim nemendum sem tóku þátt í ferlinu. Það er dýrmætt að sjá unga fólkið okkar rækta íslenska tungu af svo miklum metnaði og áhuga. Við óskum sigurvegurunum og öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur!
Fleiri myndir frá keppninni má sjá hér https://photos.app.goo.gl/FnoDSu2xj8S24xgb6









