Líf og fjör í Frístund
Heiða Viðarsdóttir • 24. apríl 2026

Síðustu vikur höfum við verið að rækta allskonar plöntur, börnin hafa skreytt dósir og valið sér blóm eða matjurtir til að rækta.
Við sáningu höfum við skoðað saman hversu ólík fræin eru, sum eru lítil og önnur stór, sum eru dökk og önnur ljós en öll verða þau nú samt af ólíkum og fallegum plöntum.
Við höfum átt fræðandi og góðar umræður um fjölbreytileika og mikilvægi þess að sýna hvort öðru virðingu.
Í síðustu viku tókum við til lóðinni okkar, margar hendur vinna létt verk svo það tók okkur ekki langann tíma að tína saman rusl og gera fínt hjá okkur.
Sólin lét svo sjá sig á mánudaginn og þá var kjörið tækifæri til að skoða nýja útidótið okkar og njóta þess að leika úti í góða veðrinu.
Sumarkveðja frá okkur í Grundaseli

Eftir Sigurður Arnar Sigurðsson
•
4. september 2026
Alþjóðlegi treyjudagurinn til styrktar krabbameinssjúkum börnum var í dag. Nemendur Grundaskóla létu sitt ekki eftir liggja og mættu í skólann í hinum ýmsu keppnistreyjum. Að sjálfsögðu var ÍA treyjan áberandi en fjölbreytnin var við völd til að vekja athygli á mikilvægu baráttumáli.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
1. september 2026
Enn bætist í fjölbreytileika Grundaskóla og hafa nemendur skólans gaman af. Þessir nýnemar hafa vakið mikla athygli og margir bíða spenntir eftir að geta tekið þá úr búrinu til að skoða betur, en nú eru þeir að stækka og þroskast. Það verður gaman að sjá hvernig þessi vinna þróast í vetur. Förustafir eru mjög vinsæl námsdýr í skólum og einföld gæludýr vegna þess hve auðvelt er að hugsa um þá. Þeir eru heillandi skordýr sem eru þekktust fyrir einstaka feluliti og líkamslögun sem líkist spýtum, greinum eða laufblöðum. Þeir bita ekki eða fljúga ef maður heldur á þeim reyna þeir frekar að standa alveg kyrrir eða labba hægt yfir á næstu hendi. Þar sem þeir geta hvorki flogið né stökkið, er mjög auðvelt og streitulaust að sýna nemendum þá, taka þá upp úr búrinu og leyfa þeim að skríða um hendur án þess að hætta sé á að þeir fljúgi burt. Það sem þarf að hafa í huga þegar umgengist er Förustafi er aðallega dýrið sjálft þar sem þetta er mjög viðkvæm dýr.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
28. ágúst 2026
Hið árlega skólahlaup var haldið í blíðskaparveðri í dag. Mikil og góð þátttaka var í hlaupinu og var gaman að sjá foreldra og ömmur taka þátt ásamt nemendum og starfsmönnum. Þetta er skemmtileg hefð og skapast alltaf mikil og góð stemning á þessum degi.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
28. ágúst 2026
Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Nú liggur fyrir ákvörðun um kjörstað hér á Akranesi, hann verður í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 9-22. Með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan má finna upplýsingar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar. Gagnlegar upplýsingar










