Uppskeruhátíð nemendaráðs
Heiða Viðarsdóttir • 22. apríl 2026

Nú líður að skólalokum og á dögunum ákvað nemendaráð Grundaskóla að fagna frábærri frammistöðu í vetur með hópeflisferð í höfuðborgina.
Full ástæða er til að hrósa nemendaráðfulltrúum og umsjónarmanni fyrir öflugt félagsstarf innan og utan skólatíma. Öflugur hópur leiðtoga sem eiga framtíðina fyrir sér.
Nú er kosningar framundan og nýtt nemendaráð tekur við kyndlinum og hefur undirbúning fyrir næsta skólaár.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
20. apríl 2026
Í síðustu viku var vorskólinn hjá okkur í 1. bekk þar sem við tókum á móti verðandi fyrstu bekkingum. Börnin fóru á þrjár mismunandi stöðvar þar sem unnið var með ýmiss viðfangsefni eins og stærðfræði og læsi. Einnig var stöð í Grundaseli þar sem börnin fengu að kynnast starfi frístundarinnar. Allir mættu með nesti sem þau borðuðu af bestu lyst. Lokadaginn fórum við í íþróttahöllina þar sem var Húllumhæ dagur með 1. bekk í Brekkubæjarskóla og elstu deildum leikskólanna. Þetta voru virkilega skemmtilegir dagar. Bkv. Teymið í 1. bekk

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
16. apríl 2026
Þessa vikuna eru gestir frá Frakklandi í heimsókn á yngsta stigi í Grundaskóla. Þær heita Emeline, Delphine og Calesia og eru hér á vegum Erasmus í svokölluðu job shadowing, þar sem þær fylgjast með starfi kennara og fá innsýn í íslenskt skólastarf. Markmið heimsóknarinnar er að efla alþjóðlegt samstarf, deila reynslu og læra hvert af öðru. Slík samskipti eru bæði kennurum og nemendum dýrmæt, þar sem þau auka skilning á ólíkum menningarheimum, kennsluaðferðum og skólastarfi. Við í Grundaskóla fögnum þessari heimsókn

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
27. mars 2026
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 1.–3. bekk tekið þátt í skemmtilegu lestrarátaki í aðdraganda páska. Markmiðið hefur verið að efla lestrargleði, styrkja lestrarfærni og vinna saman að sameiginlegu lestrarmarkmiði skólans: að lesa að minnsta kosti fimm daga vikunnar í 20 mínútur í senn. Fyrir hverjar 20 mínútur í lestri bjuggu nemendur til lítið páskaegg sem þeir hengdu upp á vegg. Smám saman fylltist veggurinn af litríkum eggjum og er hann nú orðinn einstaklega páskalegur og líflegur 🥚🎨🌼 Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að sjá hve nemendur hafa tekið verkefninu vel, bókaval hefur verið fjölbreytt og lestraráhugi mikill. Með samstilltu átaki nemenda, kennara og heimila höfum við skapað hvetjandi lestrarumhverfi þar sem hver mínúta skiptir máli. Við erum afar stolt af dugnaði og elju nemenda okkar og þökkum öllum sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera lestrarátakið svona vel heppnað. Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska og vonum að páskafríið verði fyllt af notalegum samverustundum og kannski einni góðri bók eða tveimur.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
26. mars 2026
Við viljum vekja athygli á slæmri veðurspá á morgun, fimmtudaginn 26. mars og biðjum ykkur um að fylgjast með veðurspá. Það er ákjósanlegt að foreldrar yngri barna fylgi þeim inn í skólann svo þau lendi ekki í erfiðleikum. Veðrið ætti að vera gengið niður þegar skóla lýkur.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
24. mars 2026
9.bekkur hefur undanfarnar vikur verið að læra um líkamann, blóðrásarkerfið, líffærin og ferð matarins í gegnum meltingarkerfið. Í lok lotunnar fengu þau svo að taka þátt í spennandi verklegri æfingu þar sem þau skoðuðu innyfli úr svíni, skoðuðu leiðina sem maturinn fer í gegnum líkamann og fengu að skoða lambahjörtu og skera í þau sjálf. Dagurinn var bæði fróðlegur og áhugaverður og gaf nemendum tækifæri til að skoða líffærin í nærmynd, koma við þau og spyrja spurninga um allt sem vakti forvitni þeirra. Hópurinn stóð sig mjög vel og var gaman að sjá þau spreyta sig í þessu hlutverki. Að auki kom 6.bekkur og tók þátt í hluta úr degi með okkur sem gerði upplifunina enn fjölbreyttari og skemmtilegri. Við viljum þakka Ingibjörgu náttúrufræðikennara kærlega fyrir dýrmæta hjálp og stuðning við verkefnið.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
23. mars 2026
Nemendur í 10. bekk fóru í skemmtilega og fróðlega heimsókn í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem þau fengu að kynnast verklegu stofunni og prófa sig áfram í verklegum aðstæðum. Nemendurnir stóðu sig einstaklega vel og sýndu mikinn áhuga. Þetta var skemmtilegur tími með flottum hóp sem nýtti tækifærið vel til að skoða möguleika sína í framhaldsskólanámi. Takk fyrir okkur FVA!

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
20. mars 2026
Nemendur í 7. bekk tóku tíma í rökræðum í vikunni þar sem efnið til rökræðu var símabann í skólum og skólabúningar í grunnskólum . Áður en það var byrjað, var farið vel yfir það hvernig rökræður færu fram, að það mætti ekki grípa fram í fyrir hinum og muninn á því að rökræða og að rífast. Árgangurinn skipti sér í tvo hópa og drógu svo hvort þau væri með eða á móti. Hóparnir fengu 10 mínútur til að skrifa niður rökin sín áður en fulltrúar úr hópnum stóðu svo fyrir framan dómara og fluttu rökin sín fyrir hönd hópsins. Dómari varð svo að dæma út frá því hvor hópurinn væri með betri rök og hvort þau gætu svarað rökum hins hópsins á málfarslegan og góðan hátt. Þetta var skemmtilegt verkefni sem er gaman að fara í með málglöðum og ákveðnum krökkum! Hér fylgja nokkrar myndir úr tímanum:


