Plokk hjá 2. bekk
Heiða Viðarsdóttir • 28. apríl 2026


Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
10. september 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun. Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Tímasetning er þriðjudagurinn 15. Sept. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
9. september 2026
Við byrjuðum skóla árið af krafti með því að tína sólber og rifsber til að gera sultu fyrir markaðinn Breytum krónum í gull sem haldinn verður seinna í vetur. Við munum gera sultuna í heimilis fræði. Þetta var skemtilegt haust verkefni þar sem var gamana að nýta góða veðrið og það sem nátúran gefur af sér . Fréttina skrifuðu Dagur,Þorri og Freyja nemendur í 7. Bekk

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
8. september 2026
Söngleikurinn FRELSI Undirbúningur fyrir söngleikinn Frelsi er kominn á fullt og það er sannkölluð tilhlökkun og spenningur í loftinu hjá nemendum í 10.bekk. Nemendur eru búnir að vera á fullu í dans-, söng- og leikprufum síðustu daga þar sem þeir hafa unnið saman í breytilegum hópum við að láta ljós sitt skína og allir hafa staðið sig með prýði! Nú fer að styttast í að nemendur fái úthlutuð hlutverk og þá hefjast æfingar á fullu. Söngleikurinn Frelsi er stórt og spennandi verkefni sem mun sameina og styrkja nemendur 10.bekk enn frekar! Hlökkum til að deila fleiri svipmyndum með ykkur á næstunni 😊

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
7. september 2026
Kallað eftir framboðum til Skólaráðs Grundaskóla og í stjórn Foreldrafélags skólans Fulltrúar foreldra í skólaráð Grundaskóla Nú þarf að kjósa í skólaráðið okkar og því viljum við vekja athygli allra á að kosið verður í ráðið þann 15. sept. n.k. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram sem fulltrúar foreldra (sjá nánar hér fyrir neðan) eru hvattir til að setja sig í samband við skrifstofu Grundaskóla ( grundaskoli@grundaskoli.is ) eða í síma 433-1400 og tilkynna um framboð. Helstu verkefni: Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstrar áætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólaráð starfar samkvæmt reglugerð um skólaráð við grunnskóla. Fulltrúar eftirtalinna sitja í Skólaráði Grundaskóla Skólastjóri: B er ábyrgð á stofnun skólaráðs, boðar fundi og leiðir starf þess. Aðstoðarskólastjóri eða annar staðgengill er varamaður hans í skólaráði. Kennarar: Tveir fulltrúar kennara eru kosnir á kennarafundi og tveir til vara. Annað starfsfólk: Einn fulltrúi annars starfsfólks er kosinn á starfsmannafundi og einn til vara. Foreldrar: Tveir fulltrúar foreldra skulu kosnir og tveir til vara. Nemendur: Tveir fulltrúar nemenda skulu kosnir samkvæmt starfsreglum nemendafélags og tveir til vara. Fulltrúi grenndarsamfélags: Einn fulltrúi Hollvinafélags Grundaskóla og einn til vara eru fulltrúar úr grenndarsamfélaginu. Skólaráð getur tekið ákvörðun um að boða einstaklinga á fundi til að veita upplýsingar eða ráðgjöf í einstökum málum. Framboðsfrestur til Skólaráðs Grundaskóla rennur út 12. sept. n.k.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
7. september 2026
Á föstudaginn fórum við í 2. Bekk niður á Langasand í útikennslu. Við vorum einstaklega heppin með veður og nutum þess að leika okkur í sandinum. Við fundum allskonar fjársjóði í fjörunni og meira að segja fóru sumir aðeins að vaða. Kennsluefni dagsins voru tölurnar 1-10. Krakkarnir fundu í fjörunni jafn marga hluti og tölurnar sýndu. Einnig fórum við í fjörubingó þar sem allir leituðu að ýmsum hlutum úr fjörunni og merktu við. Kveðja, 2. bekkjarteymið

Eftir Sigurður Arnar Sigurðsson
•
4. september 2026
Alþjóðlegi treyjudagurinn til styrktar krabbameinssjúkum börnum var í dag. Nemendur Grundaskóla létu sitt ekki eftir liggja og mættu í skólann í hinum ýmsu keppnistreyjum. Að sjálfsögðu var ÍA treyjan áberandi en fjölbreytnin var við völd til að vekja athygli á mikilvægu baráttumáli.




