KVENNAVERKFALL FÖSTUDAGINN 24. OKTÓBER

Heiða Viðarsdóttir • 23. október 2025

Skóli fellur niður föstudaginn 24. október vegna kvennaverkfalls

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa á sjötta tug samtaka kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópa boðað til kvennaverkfalls föstudaginn 24. okt.


Af þeim sökum er ekki hægt að halda úti skólahaldi í Grundaskóla þennan dag en rúmlega 90% starfsmanna eru konur. Augljóst er að þessar aðgerðir munu hafa mikil áhrif á allt samfélagið.


Ef einhver er í miklum vandræðum vegna þessa verkfalls má hafa samband skrifstofu skólans 4331400 eða á netfangið grundaskoli@grundaskoli.is og við athugum hvort við getum eitthvað gert til að aðstoða.


Skólastjórn

Eftir Heiða Viðarsdóttir 29. janúar 2026
Að mæla horn
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Löggurnar spiluðu fótbolta með krökkunum
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Nemendur uppgötva stærðfræðina meira sjálf
Eftir Heiða Viðarsdóttir 23. janúar 2026
5. bekkur endurvinnur kertaafganga
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. janúar 2026
Verkefni sem unnið var í 10. bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Starfsfólk Grundaskóla óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. Janúar. Jólakveðja Starfsfólk Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig.  Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 18. desember 2025
Rauður dagur í Grundaskóla, samsöngur og jólamatur.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 18. desember 2025
Lögreglan heimsótti 5. bekk
Eftir Heiða Viðarsdóttir 17. desember 2025
Unnið með gler í smiðjunni
Show More