Þemaverkefni í 8. bekk
Heiða Viðarsdóttir • 27. október 2025

Þemaverkefni um mannréttindi
Þessa dagana er 8. bekkur að vinna þemaverkefni um mannréttindi.
Nemendur lesa meðal annars bókina Vertu ósýnilegur - flóttasaga Ishmaels.
Bókin fjallar um dreng frá Sýrlandi sem flýr stríðsátök í heimalandi sínu og þarf að ferðast hættulega leið í leit að betra lífi.
Nemendur horfðu á heimildarmynd um Hvítu hjálmana sem eru hjálparsamtök í Sýrlandi með sjálfboðaliðum sem sérhæfa sig í rústabjörgun.
Eitt af verkefnunum var líka að kynna fyrir nemendum ákveðnar greinar
Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem fjallað er um réttindi fólks. Í vinnuferlinu búa nemendur til sína eigin bók.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk











