Göngum í skólann
Heiða Viðarsdóttir • 4. september 2025

Grundaskóla er skráður til leiks í Göngum í skólann

Grundaskóli er skráður til leiks í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Göngum í skólann var sett miðvikudaginn 3. september í fjölmörgum skólum bæði hérlendis og erlendis.
Alla miðvikudaga þar til verkefninu lýkur þann 1. október nk. munu umsjónarkennarar skrá ferðamáta nemenda sinna og er því mikilvægt að foreldrar og forráðamenn hvetji börnin til þáttöku og að nemendur noti virkan ferðamáta sem oftast.
Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í Grundaskóla og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember. Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
5. október 2026
Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu. Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi. Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994. Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
2. október 2026
Í vikunni fengum við góða gesti frá Tékklandi í heimsókn í Grundaskóla. Um er að ræða starfshóp sem vinnur að menntastefnu landsins til ársins 2030. Gestirnir fengu kynningu á starfsemi og áherslum Grundaskóla, skoðuðu skólann og ræddu við bæði nemendur og starfsfólk. Heimsókninni lauk með samráðsfundi þar sem gestunum gafst tækifæri til að spyrja nánar út í skipulag skólastarfsins, kennsluhætti og þær áherslur sem einkenna starf skólans. Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við barna- og menntamálaráðuneytið. Gestirnir lýstu mikilli ánægju með heimsóknina og voru sérstaklega hrifnir af aðstæðum, umhverfi og því starfi sem fram fer í Grundaskóla. Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla af reynslu okkar, eiga samtal um skólaþróun og kynnast um leið áherslum og reynslu fólks sem starfar að menntamálum í öðrum löndum.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
2. október 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun. Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Næsta tímasetning er miðvikudagurinn 7. okt. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann (2000 kr. á par) og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊




