Fréttir úr 3.bekk
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 31. mars 2025

Síðustu daga höfum við í 3.bekk verið að vinna með Akrafjallið og tröllskessuna Jóku.
Ýmis skemmtileg verkefni hafa verið unnin, m.a. endursögn um Jóku, málverk af Akrafjallinu og önnur fróðleg verkefni.
Við stefnum á að halda foreldrasýningu eftir páska þar sem nemendur munu fræða foreldra sína um Akraness með leik, söng og dansi.